Fréttir

Fréttabréf - febrúar

Fréttabréf febrúarmánaðar er komið út. Meðal efnis er stutt umfjöllun um vel heppnað skólaþing, matseðill febrúar er á sínum stað, Nordplus heimsókn kynnt til sögunnar ofl. Hér má nálgast fréttabréfið.
Lesa meira

4. bekkingar í Hlíðarfjalli

Það var líf og fjör í skíðabrekkum Hlíðarfjalls. Þar voru á ferðinni 4. bekkingar í skíða- og brettakennslu í boði Akureyrarbæjar. Á myndum sem teknar voru í ferðinni er ekki annað að sjá en að þau hafi notið sín vel. Roði í kinnum og tækifærin nýtt til að hvíla sig inn á milli. Fyrr um morguninn komu foreldrar í óformlega móttöku í skólann þar sem 6. bekkur seldi brauðbollur og kaffi samkvæmt venju. Takk samveruna og takk fyrir okkur.
Lesa meira

Skólaþing

Skólaþing var haldið hér í Brekkuskóla þriðjudaginn 22. janúar 2013. Fyrirmyndin er svokallað þjóðfundarfyrirkomulag. Fyrir þingið héldu nemendur eigin fundi inni í bekk og þar völdu þeir fulltrúa sína til að sitja sjálft þingið. Á þinginu sátu einnig fulltrúar foreldra og starfsmanna skólans. Þarna fóru fram málefnalegar umræður og færðu þingmenn góð rök fyrir máli sínu. Umræðuefnið var skipt í fjóra flokka. Þeir voru: "Skólabragur", "Skólasamfélag", "Mat og þróun" og "Nám og kennsla". Í hverjum flokki voru tvær spurningar lagðar fyrir. Niðurstöðurnar voru settar á miða og þær síðan flokkaðar í flokka sem hver hópur kom sér saman um. Þessa dagana er verið að skrá þær í rafrænt form og ákveða hvaða aðferð verði notuð við að kynna þær og hvernig hugmyndum verði hrynt í framkvæmd. Myndir frá skólaþinginu má nálgast hér. Sjá nánar í fréttabréfum skólans í janúar og febrúar 2013 http://brekkuskoli.is/is/page/skolinn_frettabref
Lesa meira

Skákdagur Íslands

Skákdagur Íslands er haldinn ár hvert á afmælisdegi Friðriks Ólafssonar, fyrsta stórmeistara Íslendinga og fyrrverandi forseta alþjóðaskáksambandsins FIDE. Af því tilefni var nemendum í 7. bekk Brekkuskóla boðin skákkennsla.
Lesa meira

5 að verða 6

Í vikunni fengum við heimsókn frá leikskólanemendum frá hinum ýmsu leikskólum bæjarins. Foreldrar þessara barna áforma að innrita barn sitt í Brekkuskóla. Börnin mættu í fylgd foreldris og fengu kynningu á húsnæði og aðbúnaði í skólanum, kynntu sér Frístund og fengu ávaxtabita. Það var ekki annað að sjá en hópurinn hafi kunnað vel við sig. Þau sáu kennslustofur fyrir listgreinar (myndmennt, handmennt, heimilisfræði, smíðar), kíktu inn til 1. bekkinga og til skólastjórans, fóru í salinn og í mötuneytið, á bókasafnið og tölvuverið. Svo fengu þau að sjá hvernig við fjölföldum verkefni handa nemendum. Sjá myndir. Næst koma þau og verða í kennslustund með 1. bekkingum og fara með þeim í mat. Þriðja heimsóknin verður síðan í íþróttatíma. Foreldrar sem skráð hafa börn sín í heimsóknirnar fá sendan póst um næstu heimsóknir.
Lesa meira

Leifur heppni

Mánudaginn 21. janúar 2013 fór fram kynning fyrir foreldra á samþættingarverkefni í samfélagsfræði, leiklist, myndlist og upplýsingatækni. Kynningin fór þannig fram að nemendur sjálfir áttu að kynna þrjú verkefni fyrir foreldrum sínum og foreldrarnir áttu að gefa barni sínu umsögn. Matið er einnig liður í því að auka fjölbreytni í námsmati nemenda. Myndir frá kynningunni.
Lesa meira

5 að verða 6

Í vikunni fengum við heimsókn frá leikskólanemendum af Hólmasól. Mörg þeirra hefja grunnskólagöngu sína í haust hjá okkur. Þau fengu kynningu á húsnæði og aðbúnaði í skólanum, kynntu sér Frístund og fengu ávaxtabita áður en þau lögðu af stað aftur að Hólmasól. Það var ekki annað að sjá en hópurinn hafi kunnað vel við sig. Þau fengu sáu kennslu í listgreinum (myndmennt, handmennt, heimilisfræði, leiklist), kíktu inn til 1. bekkinga, fóru í mötuneytið og á bókasafnið. Svo fengu þau að sjá hvernig við fjölföldum verkefni handa nemendum. Sjá myndir. Næst koma þau og verða í kennslustund með 1. bekkingum og fara með þeim í mat. Þriðja heimsóknin verður síðan í íþróttatíma.
Lesa meira

Myndataka

Myndataka nemenda fer fram í skólanum vikuna 28. janúar - 1. febrúar 2013. Myndirnar verða nýttar í lokuðu námsumhverfi skólans, Mentor. Foreldrar fá tækifæri til að kaupa myndir í gegnum vef ljósmyndarans. Nánar auglýst í janúarfréttabréfi skólans.   Skipulag myndatöku er að finna hér.
Lesa meira

Skólaþing Brekkuskóla

Þriðjudaginn 22. janúar kl. 9-11:30 er fyrirhugað að halda 40 - 50 manna skólaþing í Brekkuskóla. Skólaþingið er liður í innleiðingu á nýrri aðalnámskrá. Þar sitja fulltrúar starfsfólks, nemenda og foreldra. Á skólaþinginu verður unnið með fjórar grunnspurningar sem getið er hér að neðan og verða niðurstöður  teknar saman í lokin og nýttar til að bæta skólann. 
Lesa meira

Myndir úr listgreinum

Hér á vefinn er komið inn safn af myndum úr listgreinum. Fleiri myndir verða settar inn á næstu dögum í myndagalleríið okkar.
Lesa meira