Fréttir

Frístund - staðfesting skráningar

Allir foreldrar barna sem skráðu börn sín í vor og ætla að nýta þjónustu Frístundar fyrir börn sín næsta skólaár þurfa að staðfesta skráninguna frá í vor. Staðfesting skráningar í Frístund fer fram 14. ágúst milli kl. 10.00 og 15:00 í húsnæði Fristundar á neðstu hæð skólans, gengið inn að sunnan. Einnig er hægt að senda tölvupóst á forstöðukonu Frístundar Bryndísi Baldursdóttur bryndisb@akmennt.is eða hringa í síma 462 -2526.
Lesa meira

Skólabyrjun haustið 2012

Skólinn hefst með viðtalsdögum og verða boð send út 16. og 17. ágúst 2012 í netpósti til aðstandenda. Eins og undanfarin ár munum við biðja ykkur um að svara spurningum til að undibúa samræðu nemenda, foreldra og kennara. Undirbúningurinn fer fram rafrænt á vefsíðunni www.mentor.is.
Lesa meira

Sumarleyfi

Nemendur Brekkuskóla eru komnir í sumarleyfi til 22./23. ágúst 2012. Afgreiðsla skrifstofu Brekkuskóla er lokuð vegna sumarleyfa frá 18. júní til og með 6. ágúst 2010. Hægt er að ná í stjórnendur skólans samkvæmt eftirfarandi upplýsingum ef þörf krefur: Jóhanna María Agnarsdóttir skólastjóri Bergþóra Þórhallsdóttir aðstoðarskólastjóri  Skóladagatal næsta skólaárs og námsgagnalistar 
Lesa meira

Gunnar Úlfarsson hlaut viðurkenningu

Gunnar Úlfarsson nýútskrifaður nemandi Brekkuskóla hlaut viðurkenningu skólanefndar Akureyrarbæjar fyrir félagsþroska og virðingu fyrir samferðamönnum sínum. Gunnar er einstaklega hlýr og jákvæður einstaklingur sem sýnir mikinn félagslegan þroska og virðir störf og skoðanir annarra. Hann er réttsýnn og hugsar vel um velferð annarra. Starfsfólk Brekkuskóla óskar Gunnari til hamingju með viðurkenninguna.
Lesa meira

Skólaferðalag 10. bekkinga

Í morgun fóru 10. bekkingar í útskriftarferð. Þau byrja á flúðasiglingu í Skagafirði í blíðviðrinu í dag en halda síðan sem leið liggur til Hveragerðis þar sem þau munu gista í nótt. Adrenalíngarðurinn er á dagskránni á miðvikudag og höfuðborgin Reykjavík skönnuð á fimmtudag en þá fara þau einnig í Bláa lónið. Heimferð er áætluð upp úr kl. 16:00 á föstudag. Fararstjórar eru Jói, Sævar og Hanna Dóra.
Lesa meira

Dönsuðu í kirkjutröppunum

Nemendur Brekkuskóla dönsuðu í kirkjutröppunum á afmælis- og uppskeruhátíð leik- og grunnskóla í miðbænum 16. maí siðast liðinn. Veðrið lék við nemendur og starfsfólk. Eftir dansinn skunduðu allir í Hof og á Ráðhústorg til að fylgjast með atriðum nemenda frá skólum bæjarins. Myndir frá dansinum.
Lesa meira

Dönsuðu í kirkjutröppunum

Nemendur Brekkuskóla dönsuðu í kirkjutröppunum á uppskeruhátíð leik- og grunnskóla í miðbænum 16. maí siðast liðinn. Veðrið lék við nemendur og starfsfólk. Eftir dansinn skunduðu allir í Hof og á Ráðhústorg til að fylgjast með atriðum nemenda frá skólum bæjarins.
Lesa meira

Dönsuðu í kirkjutröppunum

Nemendur Brekkuskóla dönsuðu í kirkjutröppunum á uppskeruhátíð leik- og grunnskóla í miðbænum 16. maí siðast liðinn. Veðrið lék við nemendur og starfsfólk. Eftir dansinn skunduðu allir í Hof og á Ráðhústorg til að fylgjast með atriðum nemenda frá skólum bæjarins.
Lesa meira

Dönsuðu í kirkjutröppunum

Nemendur Brekkuskóla dönsuðu í kirkjutröppunum á uppskeruhátíð leik- og grunnskóla í miðbænum 16. maí siðast liðinn. Veðrið lék við nemendur og starfsfólk. Eftir dansinn skunduðu allir í Hof og á Ráðhústorg til að fylgjast með atriðum nemenda frá skólum bæjarins.
Lesa meira

Vorgrill og útileikir

Mánudaginn 4. júní verður hinn árlegi vorgrill- og leikjadagur Brekkuskóla. Þá fara nemendur í leikjastöðvar á skólalóð og enda svo í grilli á stéttinni við aðalandyri skólans.
Lesa meira