7. EJ og 6. ÞG stóðu sig best! Hér sjáum við 7. EJ
Brekkuskóli tók þátt í verkefninu "Göngum í skólann" að venju, en þetta er í sjötta sinn sem verkefnið er haldið.
Það voru 7. EJ og 6. ÞG sem stóðu sig best þetta skólaárið, en 6. ÞG vann einnig í fyrra. Þau fá að launum
gullskóna góðu til varðveislu og deila bekkirnir með sér vörslunni. Þau fengu einnig sippuband, snú-snú band og bolta til afnota í
frímínútum, en verðlaunin voru gefin af samstarfshópnum um Göngum í skólann. Nemendum og starfsfólki eru færðar kærar
þakkir fyrir þátttökuna og góðan árangur. Öll erum við síðan hvött til að taka þátt í næsta
átaksverkefni sem hefst 6. febrúar og nefnist "Lífshlaupið".
Nánar um verkefnið á www.gongumiskolann.is
Bekkur
Gangandi/Hjólandi
Akandi
2. bekkur
93%
7%
4. bekkur
92%
8%
5. bekkur
95%
5%
6. bekkur
98%
2%
7. bekkur
98%
2%
8. bekkur
89%
11%
10. bekkur
80%
20%
Meðalt.
92%
7,9%