Fréttir

Félagsmiðstöðin Trója

Félagsmiðstöðin Trója er staðsett í Rósenborg og er sameiginleg félagsmiðstöð fyrir Brekkuskóla, Lundarskóla, Naustaskóla og Oddeyrarskóla. Starfsmenn Tróju veturinn 2012-2013 eru:
Lesa meira

Útivistardagur

FRESTAÐ! Miðvikudaginn 3. október er áætlað að allur skólinn fari í fjallgöngu til að njóta samveru og útiveru. Þeim nemendum sem ekki geta farið í göngu af einhverjum ástæðum verður boðið upp á afþreyingu í skólanum. Farið verður í göngur sem hér segir:
Lesa meira

Snillingar - námskeið

Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar býður börnum með ADHD að taka þátt í námskeiði til að efla færni á ýmsum sviðum. Námskeiðið er fyrir börn fædd árið 2003 og 2004 og eru 6 börn í hverjum hópi. Áhersla er lögð á að auka færni barna í félagslegum samskiptum, skapstillingu, sjálfsstjórn og að bæta athyglisgetu þeirra. Hópurinn hittist tvisvar í viku 2 tíma í senn, í 5 vikur (10 skipti alls) með tveimur þjálfurum. (Þetta námskeið verður 22.okt.-21.nóv. á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:15-18:15).  Nánari upplýsingar má finna hér. Umsóknareyðublað.
Lesa meira

Foreldrar og skóli

Foreldramappa hefur nú verið afhent öllum foreldrahópum innan skólans. Foreldrum hefur einnig verið skipt upp í þrjú starfstímabil innan hvers árgangs. Listi yfir hópana er nú í vinnslu og verður brátt hægt að nálgast þá hér á síðunni. Þeir sem halda á "keflinu" fá möppuna í hendur og leiða vinnuna innan hvers árgangs. Það er von stjórnenda skólans og stjórnar foreldrafélagsins að þetta fyrirkomulag styðji við foreldrasamstarfið innan árganga.
Lesa meira

Starfsdagur

Mánudaginn 26. nóvember er starfsdagur í Brekkuskóla. Þá eru nemendur í leyfi og Frístund er lokuð fyrir hádegi.
Lesa meira

Göngum í skólann

Í ár tekur Ísland þátt í sjötta skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann verkefnið í október og Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 3. október. Vegna birtu og veðuraðstæðna fer Göngum í skólann verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði. Það hefst miðvikudaginn 5. september og lýkur á alþjóðlega deginum 3. október n.k.
Lesa meira

Kynningarfundir fyrir foreldra

Haustkynningar skólaárið 2012-2013 fyrir foreldra nemenda í Brekkuskóla verða sem hér segir: 10. sept.  Kynning á starfsáætlun árganga fyrir foreldra barna í 6., 7. og 8. bekk 11. sept.  Kynning á starfsáætlun árganga fyrir foreldra barna í 1. bekk 12. sept.  Kynning á starfsáætlun árganga fyrir foreldra barna í 2. og 3 bekk 13. sept.  Kynning á starfsáætlun árganga fyrir foreldra barna í 4. og 5. bekk 14. sept.  Kynning á starfsáætlun árganga fyrir foreldra barna í 9. og 10. bekk Kynningarnar hefjast allar kl. 08:00 (að morgni) á sal skólans og að lokinni stuttri kynningu á sal frá skólastjórnendum fara foreldrar í heimastofur nemenda þar sem umsjónarkennarar ræða nánar um starfið í árganginum. Áhersla að þessu sinni verður lögð á samstarf foreldra og skóla.
Lesa meira

Afmælisdagur Akureyrar miðvikudag

Miðvikudaginn 29. ágúst skunda nemendur og starfsfólk Brekkuskóla í miðbæinn í afmælisveislu í boði Akureyrarbæjar. Skólar bæjarins munu einkenna sig með litum og borðum merktum skólunum. Brekkuskóli verður fjólublár og við mælum með að nemendur klæðist fjólubláu ef það er möguleiki en það væri líka mjög skemmtilegt ef allir sem eiga Brekkuskólapeysu myndu koma í henni þennan dag. Hver og einn getur svo ákveðið hvort hann vill hafa fjólubláa andlitsmálningu.  Hér kemur dagskrá á Ráðhústorgi miðvikudaginn 29. ágúst:  
Lesa meira

Frístund - staðfesting skráningar

Allir foreldrar barna sem skráðu börn sín í vor og ætla að nýta þjónustu Frístundar fyrir börn sín næsta skólaár þurfa að staðfesta skráninguna frá í vor. Staðfesting skráningar í Frístund fer fram 14. ágúst milli kl. 10.00 og 15:00 í húsnæði Fristundar á neðstu hæð skólans, gengið inn að sunnan. Einnig er hægt að senda tölvupóst á forstöðukonu Frístundar Bryndísi Baldursdóttur bryndisb@akmennt.is eða hringa í síma 462 -2526.
Lesa meira

Skólabyrjun haustið 2012

Skólinn hefst með viðtalsdögum og verða boð send út 16. og 17. ágúst 2012 í netpósti til aðstandenda. Eins og undanfarin ár munum við biðja ykkur um að svara spurningum til að undibúa samræðu nemenda, foreldra og kennara. Undirbúningurinn fer fram rafrænt á vefsíðunni www.mentor.is.
Lesa meira