Fréttir

Fyrirlestur - um sexting

Frá foreldrafélaginu: Fyrirlestur í sal Brekkuskóla fimmtudaginn 26. mars 2015 klukkan 20:00. Ber það sem eftir er: Um sexting, hefndarklám og netið“ er fræðsla fyrir foreldra um öryggi barna í stafrænum samskiptum. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum ganga nektarmyndir af íslenskum börnum manna á milli á netinu, en lögreglunni hefur reynst erfitt að bregðast við vandamálinu. Dreifingin er stjórnlaus og netið gleymir engu. Sexting (að skiptast á nektarmyndum) meðal barna og unglinga eykur á vandann. Rík þörf er fyrir vitundarvakningu – og upplýstir foreldrar eru besta forvörnin. Ef ekkert er aðhafst gætu fleiri börn lent í því að vera ber það sem eftir er á netinu. Aðgangur er ókeypis og allir foreldrar eru hvattir til að mæta á fyrirlesturinn enda mikilvægt að kynna sér áskoranirnar sem fylgja tækninýjungum, jafnvel þótt börnin séu enn ung að árum. Fræðslan er í höndum Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur, höfundar verðlaunamyndanna „Fáðu já!“ og „Stattu með þér!“ sem notaðar eru í kennslu í grunnskólum landsins. Styrktaraðili átaksins er Vodafone. Sjáumst Samtaka og Foreldrafélag Brekkuskóla Wikipedia - sexting Netið og samfélagsmiðlar
Lesa meira

Sólmyrkvaskoðun

Mikil spenna lá í loftinu þegar sólmyrkvinn var skoðaður af nemendum og starfsfólki. Sólmyrkvinn stóð yfir í um 2 klukkustundir og sást hann afar greinilega. Nemendur og starfsfólk höfðu fengið sólmyrkvagleraugu að gjöf til að geta fylgst með þessu náttúruundri en mjög mikilvægt er að nota hlífðargleraugu þegar horft er á þessa undraverðu sýningu. Stjörnuskoðurnarfélagi Seltjarnaness, Stjörnufræðivefnum og Hótel Rangá eru færðar bestu þakkir fyrir að gera okkur þetta kleift. Fróðleikur af vef nams.is Myndir frá sólmyrkvaskoðun í Brekkuskóla
Lesa meira

Brekkuvision í 5. - 7. árgangi

Brekkuvision hæfileikakeppnin hjá 5. - 7. bekk var haldin á sal skólans 19. mars. Allir árgangarnir héldu sína eigin undankeppni þar sem margir fengu tækifæri á að spreyta sig. Atriðin sem kepptu að þessu sinni í lokakeppninni voru níu. Sigurvegarar að þessu sinni komu úr 7. bekk en þar voru stúlkur á ferðinni sem sýndu dansatriði. Stúlkurnar heita Andrea, Kolbrún, October og Sunneva Kára. Þær sýndu frumsaminn dans. Í öðru sæti varð söngatriði þar sem Rebekka Hvönn Valsdóttir steig á stokk og söng af hjartans list. Í þriðja sæti voru tvö atriði jöfn. Kári Hólmgrímsson úr 6. bekk söng listavel og söngdúett úr 7. bekk þærMaría Björk og Sunneva Kjartans voru öll jöfn í þriðja sætinu. Kynnir á keppninni var Guðmundur Hjálmarsson í 7. HS sem stóð sig með mikilli prýði. Myndir
Lesa meira

Leikskólaheimsókn

Myndir frá skólaheimsókn leikskólabarna 20. mars. Myndir frá skólaheimsókn leikskólabarna 26. mars - kennslustund og matur í matsal
Lesa meira

Fulltrúar okkar í Stóru upplestrakeppninni

Stóra upplestrakeppnin fór fram í MA miðvikudaginn síðasta. Það voru Sævaldur og Andrea sem voru fulltrúar okkar í keppninni að þessu sinni. Ólíver og Sunneva voru varamenn þeirra. Þau stóðu sig með glæsibrag og voru sér og skólanum til mikils sóma. Markmið með þessari hátíð er að efla upplestur sjálfum sér og öðrum til ánægju. Allir nemendur í 7. bekk eru sjálfkrafa þátttakendur og leggja kennarar markvist rækt við vandaðan upplestur og framburð yfir veturinn. HÉR er mynd af Sævaldi. HÉR er mynd af Andreu. HÉR er mynd af Andreu, Ólíver og Sævaldi.
Lesa meira

Upplestrarhátíðin í 7. bekk

Lundarskóli varð í 1. og 2. sæti í Stóru upplestrarkeppninni sem haldin var hátíðleg miðvikudaginn 11. mars. Oddeyrarskóli hreppti 3. sætið. Nemendur Brekkuskóla stóðu sig með mikilli prýði og þökkum við keppendum, varamönnum þeirra, kennurum í 7. bekk sem og öllum nemendum í 7. bekk fyrir drengilega keppni. Myndir munu birtast hér innan tíðar.
Lesa meira

3. sæti í Skólahreysti

Brekkuskóli tryggði sér 3. sæti í Skólahreysti. Keppendur lögðu sig vel fram og voru þau ásamt stuðningsliðinu skólanum okkar til mikils sóma. Guli liturinn leyndi sér ekki á áhorfendapöllunum. Fleiri myndir frá keppnninni birtast hér fljótlega.
Lesa meira

Fluguhnýtingar og stangveiði

Hópur drengja leitaði í vikunni að hvítlirfum sem þeir ætla að nota sem beitu við stangveiði. Drengirnir ásamt kennurum lyftu torfi á skólalóð og týndu í dalla hvítlirfur. MYNDIR frá tínslunni. Valgreinin Fluguhnýtingar og stangveiði samanstendur af hinum ýmsu þáttum stangveiðinnar. Í fluguhnýtingum er nemendum kennd undirstöðuatriðin og búa þau til nokkrar algengar laxa-og silungaflugur. Lokaverkefnið er svo að hanna sína eigin flugu. Í stangveiði fara nemendur í kastkennslu með flugustöngum. Einnig fá nemendur fræðslu um allan þann búnað sem fylgir fluguveiði sem og hvernig á að umgangast náttúruna og íbúa vatna og áa. Þá vinna nemendur verkefni um veiðisvæði að eigin vali.Kennslanverður nokkuð lotubundin því farið verður í a.m.k. tvær veiðiferðir sem dekka töluverðan hluta tímafjölda námskeiðssins. Gera má ráð fyrir að flestir tímanna fari fram að hausti og svo að vori en bóklegir tímar verði annaðhvort hálfsmánaðarlega eða eða vikulega á fyrirfram ákveðnum tíma yfir veturinn.
Lesa meira

Skólahreysti

Skólahreysti er á Akureyri fer fram í Íþróttahöllinni og hefst kl. 13:00 miðvikudaginn 11. mars 2015. Okkar keppendur eru: Anton Pálsson, Dagur Gautason, Helga María Guðmundsdóttir og Þórey Edda Þórleifsdóttir. Okkar litur er gulur. Skólahreysti er liðakeppni milli grunnskóla landsins.  Hvert lið samanstendur af tveimur strákum og tveimur stelpum sem öll þurfa að vera nemendur í 9. og/eða 10. bekk síns skóla. MYNDIR Hlekkur á myndir sem ljósmyndari tók af liðunum
Lesa meira

Ritstjórar í heimsókn

Tveir ritstjórar frá Námsgagnastofnun komu í heimsókn til okkar í Brekkuskóla í vikunni og kynntu sér kennslu í upplýsinga- og samskiptatækni, smíðum, dönsku og myndmennt. Ritstjórarnir fengu að fylgjast með kennslustundum og eiga samræðu við kennara. Fleiri ritstjórar buðu síðan upp á samræðu í Háskólanum á Akureyri. Það er dýrmætt að fá slíka heimsókn og til að ræða hvað má betur fara, hvað vantar af efni og hvers konar efni vantar. Við þökkum þeim Guðríði og Hörpu kærlega fyrir komuna til okkar. Hér má sjá nokkrar myndir frá heimsókninni.
Lesa meira