28.01.2015
Jafningjafræðsla frá meðlimum ungmennaráðs SAFT verður í
Brekkuskóla miðvikudaginn 28. janúar 2015 fyrir nemendur í 8. bekk. Fræðslan er um jákvæða og örugga netnotkun.
MYNDIR
Lesa meira
22.01.2015
Þar sem framundan er kynningar- og málfundur um netnotkun barna á Akureyri 29. janúar næstkomandi, vekjum við athygli á grein um netnotkun
íslenskra ungmenna og mörk sem foreldrar setja þeim um netnotkun.
Niðurstöður skólaþings Brekkuskóla um þessi mál eru væntanlegar úr vinnslu og fróðlegt verður að sjá hvernig
þær tóna við þessa rannsókn.
Greinin er fengin í veftímaritinu Netlu 22/12/2014. Netnotkun hefur aukist mikið síðasta áratuginn og er orðin stór hluti af daglegu lífi margra,
einnig ungmenna. Tækniþróun hefur leitt til þess að aðgengi að Netinu er ekki lengur bundið við heimatölvu og símalínu heldur er
hægt að komast á Netið næstum hvar sem er og hvenær sem er. Í þessari ► grein
Hjördísar Sigursteinsdóttur, Evu Halapi og Kjartan Ólafssonarer skýrt frá niðurstöðum rannsóknar á netnotkun ungmenna í
9. og 10. bekk grunnskóla á Íslandi og hvort foreldrar setji ungmennunum einhverjar reglur eða mörk varðandi hana.
Lesa meira
20.01.2015
Spiladagurinn 20. janúar var vel heppnaður. Nemendur komu saman í vinaárgöngum og spiluðu á ýmis spil og áttu notalega samveru með
vinaárgangi og starfsfólki skólans. Það var gaman að sjá hvernig eldri nemendur tóku að sér að aðstoða þá yngri.
Andrúmsloftið var litað af gleði og vellíðan. Finna má myndir frá þessum skemmtilega
tilbreytingardegi hér.
Lesa meira
16.01.2015
Ásdís María Þórisdóttir nemandi í 7. bekk Brekkuskóla hlaut 1. verðlaun á miðstigi í
vísnasamkeppnigrunnskólanema, Vísubotn 2014 sem Námsgagnastofnun efndi til í tilefni af degi íslenskrar tungu 16. nóvember 2014.
Við óskum Ásdísi Maríu innilega til hamingju með framúrskarandi árangur. Hún er skólanum okkar til sóma og öðrum
nemendum til fyrirmyndar.
Botninn hennar Ásdísar Maríu er svona:
Grýlukerti glitrar á,
glóir sólin bjarta.
Brennur stjarnan bjarta þá,
bráðnar frosið hjarta.
Sjá nánar frétt á nams.is
Lesa meira
16.01.2015
Við fengum tvær heimsóknir frá Hólmasól í vikunni þar sem börn sem eru 5ára að verða 6 heimsóttu okkur og
skoðuðu skólann og starfið. Þetta var fyrsta heimsókn þeirra af þremur á þessari önn. Næst koma þau og fara í
kennslustund og fá að borða með okkur og í síðustu heimsókninni prófa þau að fara í íþróttatíma í
Íþróttahöllinni.
Vorskólinn fyrir innrituð börn verður síðan á sínum stað í maí.
Innritun í skólann verður auglýst af Skóladeild og fer hún fram í marsmánuði.
Heimsókn nemenda af öðrum leikskólum sem hyggja á skólavist í Brekkuskóla verður miðvikudaginn 21. janúar kl. 10:30 Sjá
nánar í bréfi sem sent var á alla leikskóla bæjarins.
Myndir frá heimsókninni 15. janúar
Myndir frá heimsókninni 14. janúar
Lesa meira
16.01.2015
Maritafræðslan hjá 5. bekk gekk vel og mæting var góð. Það eru IOGT, Saft og Kea hótel sem gerðu þessa heimsókn kleifa og erum
við þeim afar þakklát. Við bendum á fb - síðu Marítafræðslunnar og vefsíðu Marítafræðunnar.
Hér má finna nokkrar myndir frá fræðslustundinni.
Lesa meira
15.01.2015
Fimmtudaginn 15. janúar 2015 kl. 08:00 verður fræðsla á vegum Marita og IOGT í boði ABC Barnahjálpar, fræðslan er fyrir börn
í 5. bekk og foreldra/forráðamenn.
Fyrstu 50 mínúturnar sitja börnin ásamt foreldrum fræðsluna en næstu 40 mínúturnar á eftir er einungis ætluð foreldrum.
Það er því um 90 mínútna fræðslu að ræða fyrir foreldra en 50 mínútur fyrir börnin.
Í Brekkuskóla verður fræðslan FIMMTUDAGINN 15. JANÚAR í sal skólans klukkan 08:00
Kveðja,
Forvarna- og félagsmálaráðgjafar Akureyrar
Lesa meira
20.01.2015
Þann 20. janúar verður spiladagur í Brekkuskóla. Þá munu vinaárgangar hittast og spila ýmis spil, dansa og segja brandara og
skemmtisögur. Dagurinn er gulmerktur á skóladagatali sem þýðir að ekki er kennt samkvæmt stundaskrá. Spilað verður fram til kl. 11.
Þá taka umsjónarkennarar við og eru með nemendum sínum fram að matartíma. Eftir mat fara nemendur heim eða í Frístund sem þar eru
skráð. Valgreinar falla niður þennan dag en samvalstímar halda sér allir nema hjá Átak (þar sem nemendur eru saman frá mörgum
grunnskólum).
Vinaárgangar eru sem hér segir:
1. og 6. árgangur
2. og 7. árgangur
3. og 8. árgangur
4. og 9. árgangur
5. og 10. árgangur
Lesa meira
26.01.2015
Mánudaginn 26. janúar og þriðjudaginn 27. janúar kemur bóndi í heimsókn í 7. bekkina. Það verður Hermann Ingi
Gunnarsson bóndi sem mun kynna fyrir nemendum starf bóndans.
Lesa meira
29.01.2015
Fimmtudagskvöldið 29. janúar verður fyrirlestur, kynning og málstofa fyrir foreldra á Akureyri á vegum Samtaka, Heimilis og skóla og Saft um
snjallsímanotkun barna og unglinga. Takið kvöldið frá. Nánar auglýst síðar.
Lesa meira