Skyndihjálp - Rauði krossinn

Rauði krossinn á Íslandi fagnar 90 ára afmæli félagsins um þessar mundir.  Af því tilefni hefur verið blásið til sóknar í kynningu á skyndihjálp, einu elsta og mikilvægasta verkefni félagsins. Á afmælisárinu hefur verið útbúið ýmiskonar fræðsluefni sem þjóðin fær að gjöf frá félaginu í þeim tilgangi að efla kunnáttu landsmanna í skyndihjálp og bjarga þannig mannslífum. Allir nemendur Brekkuskóla fengu þessa kynningu 17. febrúar 2015. Eitt stærsta verkefni ársins er að bjóða öllum nemendum í grunnskólum landsins upp á stutta skyndihjálparkynningu þar sem farið verður í hvernig  beita má endurlífgun, losa aðskotahluti úr öndunarvegi, stöðva blæðingu og kæla bruna. Ef vel tekst til fá um 44.000 börn tækifæri til að læra þessi mikilvægustu atriði skyndihjálpar og fara síða heim til ættingja og vina með boðskapinn.
Deildir Rauða krossins um allt land sinna skólaheimsóknunum en búið er að útbúa um hálftíma kynningu fyrir heimsóknirnar. Kynningin inniheldur glærusýningu, kynningarmyndband um skyndihjálparappið og myndband/teiknimynd við Skyndihjálparlagið