Fréttir

ADHD námskeið fyrir foreldra

Fræðslunámskeið fyrir foreldra 6 - 12 ára barna með ADHD verður haldið laugardagana 1. og 8. nóvember næst komandi. Nánari dagskrá hér
Lesa meira

Allir lesa

Nú stendur yfir landsleikurinn Allir lesa, sem hvetur landsmenn til að stunda lestur af öllu tagi.  Menn skrá sig til keppni á www.allirlesa.is og skrá allan lestur, jafnt yndislestur og fræðilestur. Það er hægt að stofna lið eða keppa sem einstaklingur.  Við á Akureyrarstofu höfum skráð lið til keppni og skorum á aðrar deildir bæjarins til að gjöra slíkt hið sama. Þetta er skemmtilegt og skapar mjög líflegar umræður í kaffitímum.  Það eru líka allskyns viðburðir í gangi hér og þar í bænum, sjá viðhengi. Fylgist líka með á www.visitakureyri.is
Lesa meira

Ráðstefna um snjalltækjanotkun í skólum

Föstudaginn 31. október standa Heimili og skóli að ráðstefnu um snjalltækjanotkun í skólum á Grand Hotel Reykjavík kl. 12.30 – 16.
Lesa meira

Haustfrí

Haustfrí er í grunnskólum Akureyrar dagana 24. og 27. október 2014. Við vekjum athygli á hugmyndabanka Akureyrarstofu til samverustunda fyrir fjölskyldur.
Lesa meira

Vika 43

Vika 43, forvarnaverkefni Samstarfsráðs um forvarnir, hófst mánudaginn 20. október. Í vikunni er kastljósi beint að ýmsu er varðar félagsstarf meðal barna og ungmenna, lífsstíl og sjálfsmynd og vakin athygli á því góða starfi með ungu fólki sem lítur að forvörnum í nærsamfélaginu (heimabyggð). Alla daga vikunnar verður vakin athygli á virkri þátttöku barna og ungmenna í hvers kyns íþrótta-, félags- og tómstundastarfi.
Lesa meira

Annarskil

Annarskil eru í valgreinum á unglingastigi og list- og verklegum greinum í yngri bekkjum 14. janúar 2015, en þá verður yfirstandandi skólaár hálfnað.
Lesa meira

Drög að sáttmála

Hér eru drög að sáttmála um  notkun upplýsinga- og tölvutækni í skólastarfi Brekkuskóla. Athugasemdir þurfa að berast fyrir 20. október (til og með). Það væri frábært ef þið mynduð kynna og ræða þessi drög í umsjónarbekkjunum og beinið athugasemdum á netfangið brekkuskoli@akmennt.is merkt "sáttmáli" eða skráið athugasemdir á miða og skilið í kassa sem er staðsettur hjá ritara. SÁTTMÁLINN
Lesa meira

Stjörnuskoðun

Á föstudag hefst alþjóðleg „stjörnutalning“ þar sem fólk út um allan heim fer út og skoðar hve margar stjörnur sjást í Svaninum (fólk á suðurhveli notar reyndar Bogmanninn).
Lesa meira

Skólaþing 2014

Myndir frá skólaþingi 2014 Þetta er í annað sinn sem Brekkuskóli stendur fyrir skólaþingi. Í janúar 2013 var umræðuefnið um þætti í nýrri aðalnámskrá. Reynsla okkar af þessu fyrirkomulagi var mjög góð og var strax ákveðið að halda annað þing að tveimur árum liðnum.
Lesa meira

Leiðbeiningar vegna gosmengunar

Almannavarnir, Umhverfisstofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og Sóttvarnalæknir hafa fengið nokkuð af fyrirspurnum frá leik- og grunnskólum um hvar upplýsingar megi finna varðandi gosmengunina. Almannavarnir gefa út tilkynningar þegar háir mengunartoppar ganga yfir og nauðsynlegt er að fólk haldi sig inni og loki gluggum. Athugið að mengunartoppar ganga jafnan hratt fyrir. Það breytir ekki því að gosmengun getur legið í loftinu í lægri styrk og við höfum því hvatt fólk til að treysta á eigin skynfæri og skynsemi. Ef fullorðnir finna fyrir einkennum og óþægindum og líður betur inni gildir það sama um börnin. Engin ástæða er til að ætla að SO2 mengun sé hættilegri börnum en fullorðnum, að mati Sóttvarnalæknis.       
Lesa meira