Fréttir

Foreldrabréf vegna skólabyrjunar 2015

Skólabyrjun skólaárið 2015 – 2016 Foreldrabréf til foreldra í Brekkuskóla. Föstudaginn 21. ágúst og mánudaginn 24. ágúst 2015eru samtalsdagar hér  í Brekkuskóla. Þessa daga er ekki kennsla, en ætlast er til þess að nemendur mæti ásamt forráðamönnum til samtals við umsjónarkennara annan hvorn þessara daga.  Við höfum það fyrirkomulag á við niðurröðun foreldra í samtöl, að foreldrar sjálfir bóka sig í samtalstíma hjá umsjónarkennara í gegnum www.mentor.is.   Þá er farið inn á fjölskylduvef mentor og smellt á hlekk sem birtist hægra megin á síðunni - "bóka foreldraviðtal".
Lesa meira

Skólabyrjun 2015

Skólinn hefst að venju með samtölum nemenda, foreldra og kennara 21. og 24. ágúst. Boðun í samtöl verður send í tölvupósti. Skráning í samtölin fer fram á Mentor eftir að tölvupóstur hefur borist. Ný lykilorð eða glötuð má nálgast samkvæmt leiðbeiningum þar um í tölvupósti frá skólanum um skólabyrjun.Námsgagnalistar fyrir skólaárið 2015 - 2016. Skóladagatal fyrir skólarið 2015 - 2016
Lesa meira

Staðfesting í Frístund

Staðfesting í Frístund fyrir skólaárið 2015 – 2016 fer fram föstudaginn 14. ágúst kl. 10:00 – 15:00 Ágætu foreldrar/forráðmenn. Börn í 1.- 4. bekk skólans eiga kost á gæslu eftir skólatíma dag hvern tilkl. 16:15. Frístund er tilboð sem er hluti af skólastarfinu og er hluti af heildarstefnu skólans.  Staðfesta þarf umsókn um dvöl í Frístund með dvalarsamningi sem tilgreinir hvaða daga ogtíma á að nota. Börn geta ekki byrjað í Frístund fyrr en gengið hefur veriðfrá dvalarsamningi. Þeir sem komast ekki ofangreindan dag eru vinsamlegast beðnir um að haf samband samkvæmt neðangreindum upplýsingum og við finnum saman annan tíma. Verðskrá:Skráningargjald 20 klst - 6.860 krónur. Aldrei er hægt að kaupa færri en 20tíma á mán.Hver klukkustund kostar 343 krónur.    Síðdegishressing kostar 130 krónur hvert skipti.        Fjölskylduafsláttur reiknast af grunngjaldi. Til að njóta fjölskylduafsláttar þurfa börnin að vera skráð á kennitölu sama forráðamanns og með sameiginlegt lögheimili. Yngsta barn fullt gjald, annað barn 30% afsl.,   þriðja barn 60% afsl. og fjórða barn 100% afsl.  Nánar um Frístund                                                  Sjáumst í skólanum!Aðalbjörg Steinarsdóttir forstöðukona Fristundar í Brekkuskóla ally@akmennt.iss. 462-2526
Lesa meira

Skrifstofa skólans

Skrifstofa Brekkuskóla er lokuð frá 1. júlí - 4. ágúst vegna sumarleyfa. Upplýsingar um skólavist, húsnæði skólans, námsgögn og skóladagatal næsta skólaárs má nálgast sem hér segir: Húsnæði skólans. Hafið samband við umsjónarmann skólahúsnæðisins eða skólastjóra. Umsókn um skólavist í grunnskóla á Akureyri. Námsgagnalistar fyrir skólaárið 2015 - 2016. Skóladagatal fyrir skólarið 2015 - 2016
Lesa meira

Skólaslit

Skólaslit Brekkuskóla fóru fram mánudaginn 8. júní. Stundin var hátíðleg að venju. Það eru  38 nemendur sem kveðja núna skólann og innritaðir hafa verið 45 nemendur í 1. bekk næsta skólaár. Stjórnendur þakka nemendum, foreldrum/forráðamönnum og samstarfsfólki samstarfið skólaárið 2015 - 2016. Starfsdagar verða dagana 9. - 11. júní 2014. Skrifstofa Brekkuskóla verður opin frameftir júnímánuði, en lokar eftir það vegna sumarleyfa. Þeir sem eiga eftir að skila Unicef umslögum eða vilja koma framlagi til Unicef geta komið framlögum á skrifstofu. Skólaslit hjá elstu nemendunum. Myndir frá skólaslitum þeirra sem  útskrifast nú úr grunnskóla eru komnar í myndagallerýið okkar. Útskriftarnemendum og fjölskyldum þeirra færum við bestu framtíðaróskir. Starfsfólk Brekkuskóla
Lesa meira

Unicef söfnunin

Unicef Unicefsöfnunin sem skólinn tók þátt í og fór fram í síðustu viku með áheitasöfnun og leikjum á skólalóð lýkur í dag. Þeir sem eiga eftir að skila umslagi eru vinsamlegast beðnir um að gera það í dag eða næstu daga á skrifstofu skólans. Einnig er hægt að senda greiðslu beint inn á reikning 701-26-102010 kt.481203-2950 og setja þá skýringuna BREKKUSKÓLI með greiðslunni svo hægt sé að fylgjast með heildarsöfnunarupphæð skólans. Með samstarfskveðju úr skólanum og ósk um ánægjulega sumardaga. Stjórnendur og starfsfólk Brekkuskóla
Lesa meira

Útileikir og vorgrill

Það er líf og fjör á skólalóðinni í dag. Nemendur fara í útileiki á 15 stöðvum þar sem m.a. er farið í Gulur, rauður, grænn og blár, fótbolta, kasta hringjum, stoppdans, limbó, kött og mús, snú-snú, baunapokahlaup, stinger (körfubolta), strút (eltingaleik), teygjutvist (teygjó), verpa eggjum, stórfiskaleik, skotbolta (sinalkó) og dimma-limm. Að lokum er endað í grillveislu í portinu fyrir fram aðalinngang skólans. Um leið og nemendur taka virkan þátt í leikjunum safna þau fyrir UNICEF sem vinnur að því að gefa börnum annars staðar í heiminum framtíðarvon. Nemendur hafa fengið fræðslu um verkefnið og eru hvött til virkrar þátttöku á stöðvunum til að safna sem mestu. Að lokum fara nemendur í grillveislu í portinu fyrir framan skólann. Móttaka gesta: Í grillinu taka 4. bekkingar á móti verðandi 1. bekkingum næsta haust, gefa þeim bol og bjóða þeim í grillveislu. Þessir árgangar verða síðan vinaárgangar á næsta skólaári. Hér má nálgast myndir frá þessum skemmtilega degi.
Lesa meira

Útivist og vorgrill

Föstudaginn 5. júní verður hinn árlegi vorgrill- og leikjadagur Brekkuskóla. Þá fara nemendur í leikjastöðvar á skólalóð og enda svo í grilli á stéttinni við aðalandyri skólans. Dagurinn er líkt og í fyrra helgaður Unicef hreyfingunni  á Íslandi þar sem við sameinumst í verki með hreyfingu í þágu barna. Verkefnið felur í sér fræðslu um veruleika barna í fátækari löndum. Nemendur fá fræðslu hjá kennurum sem undirbúin er af Unicef hreyfingunni. Dagskrá vorgrilldagsins og útileikja er sem hér segir: Föstudagur 5. júní - Útivist og vorgrill  1.- 6. bekkur Kl.08:00 – 09:00 1.- 4.b ”frjáls mæting” - opið í stofum – spil og rólegheit Kl.09:00 Mæting. Allir í 1. – 6. bekk Kl.09:20 – 10:20 Útileikir – stöðvar á skólalóð. Nemendur safna "öpum" í apakverið sitt (Unicef). Kl.10:20 – 10:40 Frímínútur Kl.10:40 Mæting í stofur til umsjónarkennara Kl.11:20 Grill 1. og 2.bekkur - heimferð eða Frístund eftir grill (5 ára innrituðum nemendum boðið í grill. Gjöf frá vinum Brekkuskóla). 11:20 - 12:00 Gestir - væntanlegir 1. bekkingar haustið 2015 og foreldrar þeirra. Kl.11:40 Grill 3. og 4.bekkur – heimferð eða Frístund eftir grill Kl.11:50 Grill 5. og 6.bekkur – heimferð eftir grill Nemendur í 1. - 4. bekk eru í umsjón kennara sinna til kl. 12:00. Þá opnar Frístund og hinir fara heim sem ekki eru skráðir þar.  7. – 9. bekkur Kl.10:30 Mæting hjá umsjónarkennara. Allir í 7. – 9. bekk Kl.10:40 – 12:00 Útileikir – stöðvar á skólalóð Kl.12:00 Grill og heimferð eftir það
Lesa meira

Hönnun og smíði

Í Brekkuskóla hafa verið unnin verkefni í hönnun og smíði sem prýða nú tengiganginn milli bygginga. Verkefnin eru afrakstur kennslu í hönnun og smíði hjá Brynhildi Kristinsdóttur smíðakennara. Brynhildi er margt til lista lagt og nær að virkja nemendur í skapandi verkefni jafnt á sviði hönnunar, lista og smíði. Fleiri myndir.
Lesa meira

Starfskynning hjá 9. bekk

Nú í vikunni hafa nemendur 9. bekkjar Brekkuskóla verið í starfskynningum í fyrirtækjum á Akureyri og í nágrenni. Fimmtudaginn 4. júní munu nemendur halda kynningu á sal fyrir foreldra, kennara og nemendur í yngri bekkjum á því hvers þau hafa orðið vísari í þessum starfskynningum. MYNDIR Framsetning getur verið margvísleg s.s. myndir, upptökur, glærur, veggspjöld, útprentuð gögn o.fl. Fjölskyldum 9. bekkinga er hér með boðið að koma á þessa kynningu kl. 11:30-12:30 fimmtud. 4. júní í sal Brekkuskóla. Einnig er foreldrum boðið upp á að fá sér að borða í mötuneytinu að kynningu lokinni. Gaman væri að sjá sem flesta - því fleiri sem koma því betri stemning? Steinunn náms- og starfsráðgjafi
Lesa meira