Viðurkenning skólanefndar 2015

Þriðjudaginn 26. maí boðaði skólanefnd Akureyrarbæjar til samkomu í Hofi og veitti nemendum og starfsfólki í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar viðurkenningar fyrir að hafa skarað fram úr í starfi. Jirapat Phuttarat nemandi í 7. HS hlaut viðurkenningu fyrir góðan námsárangur og vinnusemi. Jóhannes Gunnar Bjarnason hlaut einnig viðurkenningu fyrir framúrskarandi kennslu en hann starfar sem íþróttakennari við skólann. Við óskum þeim Jirapat og Jóhannesi  innilega til hamingju með viðurkenninguna! Við erum stolt af ykkur! Fleiri myndir frá afhendingunni