Heimsókn í 1. bekk

Við erum rík af foreldrum í Brekkuskóla. Margir þeirra hafa komið við hjá okkur og glatt börnin og frætt á ýmsan hátt í gegnum tíðina. Ein slík heimsókn var hjá 1. árgangi í morgun þegar Hjalti Jónsson, einn faðirinn í árgangnum leit við með gítarinn í samverustund og tók með nemendum og kennurum lagið. Það var hress hópur sem kallaði á vorið þennan morguninn. Sjá myndskeið.