02.06.2016
Viðurkenningar Skólanefndar voru afhendar í gær við
hátíðlega athöfn í Hofi. Markmiðið með þeim er að vekja sérstaka athygli á því
sem vel er gert og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því
góða starfi sem þeir eru að vinna og jafnvel gera enn betur. Viðurkenning er
einnig staðfesting á að viðkomandi kennari/nemandi er fyrirmynd annarra á því
sviði sem viðurkenning nær til. Við erum stolt að greina frá því að Kári
Hólmgrímsson nemandi í 7. bekk og Sigurlína Jónsdóttir kennari hlutu
viðurkenningu Skólanefndar að þessu sinni. Við óskum þeim innilega til hamingju!
Lesa meira
30.05.2016
Mánudaginn 6. júní eiga
nemendur að mæta í stofur til umsjónarkennara samkvæmt neðangreindu skipulagi.
Þeir koma síðan á sal 45 mín. seinna. Þar mun skólastjóri segja nokkur orð. Að
lokum syngjum við okkur út í sumarið með tónlistarkennaranum Sigríði Huldu
Arnardóttur. Nemendur mæta samkvæmt eftirfarandi tímasetningum: Kl. 9 mætir 5. og 6. árgangurkl. 10 mætir 7., 8. og 9. árgangurKl. 11 mætir 3. og 4. árgangurKl. 12 mætir 1. og 2. árgangur Skólaslit og útskriftarathöfn 10. bekkja hefst á sal skólans kl.15:30 og eru foreldrar, forráðamenn og velunnarar
skólans hjartanlega velkomnir.
Lesa meira
30.05.2016
Föstudaginn 3. júní verður hinn árlegi vorgrill- og
leikjadagur Brekkuskóla. Þá fara nemendur í leikjastöðvar á skólalóð og enda
svo í grilli á stéttinni við aðalandyri skólans. Dagurinn er líkt og í fyrra
helgaður Unicef hreyfingunni á Íslandi
þar sem við sameinumst í verki með hreyfingu í þágu barna. Verkefnið felur í
sér fræðslu um veruleika barna í fátækari löndum. Nemendur fá fræðslu hjá
kennurum sem undirbúin er af Unicef hreyfingunni. Skólabíll fer frá Brekkuskóla kl. 12:15 þennan dag. Dagskrána má skoða hér:
Lesa meira
18.05.2016
Miðvikudaginn 18. maí verða böll sem 10. bekkur stendur fyrir og er liður í fjáröflun fyrir skólaferðalagið.
Lesa meira
11.05.2016
Samtaka er búið að fá Akureyringinn Sigga Gunnars, Útvarpsmann á K-100, til að koma og vera með fyrirlestur fyrir 8 10 bekk í öllum grunnskólunum á Akureyri dagana 17. og 18. maí næstkomandi. Í tilefni þess höfum við ákveðið í samstarfi við Sigga Gunnars að bjóða einnig foreldrum upp á fyrirlestur með honum og verður hann haldinn í Giljaskóla þriðjudagskvöldið 17. maí klukkan 20:00
Fyrirlesturinn ber heitið Vertu þú sjálfur og fjallar um mikilvægi þess að þekkja sjálfan sig, læra á sjálfan sig og samþykkja sjálfan sig og fer Siggi yfir sína sögu og tengir hana við almennar hugleiðingar.
Lesa meira
06.05.2016
Brekkuskóli hlaut í dag 100 þúsund króna bókaúttekt frá
Barnabókasetri Íslands og Félagi íslenskra bókaútgefenda vegna sigurs Egils og
Arndísar í Siljunni sem er myndbandasamkeppni Barnabókaseturs Íslands. Ekki nóg með að þau unnu heldur urðu
Kristíana og Ingunn í öðru sæti keppninnar sem er frábær árangur. Við óskum þeim öllum til hamingju!
Lesa meira
30.04.2016
Brekkuskólaleikar árið 2016 verða settir mánudaginn 2. maí og standa til 4. maí. Að þessu sinni eru þeir sérstaklega veglegir þar sem nú er ólympíuár. Nemendur fara á milli stöðva og fá að taka þátt í margvíslegum íþróttagreinum og leikjum. Má nefna: Jakahlaup, boltaleiki, golf, sund, skólahreysti og dans. Hver árgangur er auðkenndur með ákveðnum lit: 1. b gulur, 2. b rauður, 3. b grænn, 4. b dökk blár, 5. b svartur, 6. b fjólublár, 7. b bleikur, 8. b appelsínugulur, 9. b hvítur og 10. b ljósblár.
Markmið með leikunum eru m.a.:
· að efla samkennd meðal nemenda
· að kynna nemendum mismunandi íþróttagreinar
· að efla félagsþroska
· að kenna nemendum að virða og fara eftir leikreglum
· að kenna tillitssemi
Lesa meira
27.04.2016
Eins og undanfarin ár stendur UFA fyrir 1. maí hlaupi á Akureyri. Þrjár vegalengdir verða í boði, 5 km hlaup með tímatöku, 2 km krakkahlaup og 400 m leikskólahlaup.
Hlaupið er keppni á milli grunnskóla þar sem keppt er um hlutfallslega þátttöku og sá skóli sem sigrar hlýtur veglegan bikar. Í skólakeppninni geta krakkarnir valið um að hlaupa 2 eða 5 km og er 5 km hlaupið er einnig opið öðrum keppendum.
Keppni hefst kl. 12:00 í krakkahlaupinu en 12:45 í 5 km - en athugið að skráningu lýkur kl. 11:00.
Lesa meira
24.04.2016
Miðvikudaginn 20. apríl var haldin upplestrarhátíð á sal Brekkuskóla. Nemendur í 4. bekk fögnuðu því að hafa tekið þátt í Litlu upplestrarkeppninni sem hófst formlega á degi íslenskrar tungu 16. nóvember 2015. Nemendur hafa verið duglegir að æfa upplestur í allan vetur og fengu viðurkenningarskjal því til staðfestingar.
Keppnishugtakið felur eingöngu í sér það markmið að keppa að betri árangri, ekki að keppa við bekkjarfélagana heldur sjálfan sig og stefna stöðugt að því að bæta framsögn og upplestur, að flytja móðurmálið sjálfum sér og öðrum til ánægju.
Lesa meira
18.04.2016
Skólaárið 2016-2017 geta nemendur valið úr fjölmörgum greinum. Markmiðið var að bjóða uppá fjölbreytt úrval valmöguleika og von okkar er sú að allir geti fundið sér áhugaverðar og spennandi greinar. Valgreinar eru sumar sameiginlegar fyrir 8. - 10. bekk en aðrar einungis fyrir 9. og 10. bekk. Almennt samsvarar hver grein 2 kennslustundum á viku yfir veturinn en nú eru langflestar innanskólagreinarnar kenndar hálfan vetur hver og því þarf að velja sérstaklega fyrir haustönn annarsvegar og vorönn hinsvegar. Skipti milli greina eru um miðjan janúar 2017. Flestar samvalsgreinarnar eru kenndar allan veturinn hver grein. Þær eru kenndar í grunnskólum bæjarins og fleiri stöðum. Fimm greinar eru kenndar í VMA fyrir nemendur í 9. og 10. bekk, fjórar eru hálfs árs greinar og ein heilsárs.
Reiknað er með að nemendur geti nýtt sér strætisvagnakerfi bæjarins til að komast milli staða. Fyrirvari er gerður um að greinar geta fallið niður vegna lítillar þátttöku eða annarra ófyrirsjánlegra orsaka. Einnig getur komið fyrir að fleiri sækja í greinar en hægt er að koma að.
Nánari upplýsingar eru í kynningarritum og á umsóknarblöðum sem skila þarf í síðasta lagi mánudaginn 25. apríl nk. Einnig er velkomið að hafa samband við Steinunni Hörpu, náms- og starfsráðgjafa, netfang steinunnh@akmennt.is
Kynningarbæklingur 8. bekkur
Kynningarbæklingur 9. og 10. bekkurUmsókn 8. bekkurUmsókn 9. og 10. bekkurList- og verkgreinar
Lesa meira