11.11.2015
Krakkarnir í Brekkuskóla voru mjög ákveðnir í
árshátíðarundirbúningnum og allir lögðu sig fram um að gera sitt besta.
Árshátíðarundirbúningurinn gekk vel og öll atriðin voru frábær. Sumir árgangar
höfðu ekki mikinn tíma en atriðin voru framúrskarandi og vel leikin miðað við í
hve mikilli tímaþröng þau voru unnin. Margir krakkarnir ákváðu atriðin sín
sjálfir og voru mjög hugmyndaríkir og skapandi. Eldri árgangarnir skrifuðu
leikritin sín sjálfir, þeir völdu sér hugmyndir og gerðu þær að veruleika og
settu þær fram út frá eigin hugmyndum.
Við fórum í fyrsta bekk og fengum að tala við tvo æðislega
krakka og spurðum nokkurra spurninga um árshátíðina. Fyrsti bekkur gerði atriði
með þremur lögum sem krakkarnir lærðu utan að og sungu af mikilli list.
Krakkarnir eru mjög glaðir með atriðið sitt og finnst fyrsta árshátíðin sín
mjög skemmtileg og hlakka til að fá að vera partur af henni þetta ár og öll hin
sem tíminn gefur. Til að hrista aðeins upp í spurningunum spurðum við þau hver
uppáhalds lögin þeirra eru og hverja þau myndu vilja leika. Lagið Golden boy úr
Eurovision kom oft upp og ef til vill myndu þau vilja vera hinn eini sanni
Svampur Sveinsson og spræku mörgæsirnar fjórar frá Madagaskar.
Við spjölluðum við tvo krakka úr níunda bekk sem eru með
kynjabreytta leikritið Mjallhvíti og dvergana sjö sem breytt var i
Skjannahvítan og ömmurnar sjö. Hugmynd þeirra að leikritinu byrjaði með því að
þau vildu vilja breyta um hlutverk á milli kynjanna, svo völdu þau söguna um Mjallhvíti
sem grunn og kom það æðislega út. Þeim finnst atriðið sitt skemmtilegt og
finnst gaman að sjá hvað öðrum líkar vel við það og þau eru stolt af sér fyrir
að ná þessu svona vel. Við spurðum sömu spurninga og áður og fengum svörin
James Bond og fallegu Adele sem á frægasta Hello orðið í nútímanum.
Tíundi bekkur ákvað að hafa hinn gamla góða barnaþátt Latabæ
og breyta honum í nútímaútgáfu. Fengnir voru fáeinir nemendur til að finna leikrit
og skrifa það á stuttum tíma og gekk það eins og í sögu. Báðum nemendunum sem
við töluðum við finnst æðislegt á árshátíðinni en ekki ætlum við að ljúga, það
skemmtilegasta við hana er að þurfa ekki að læra. Krakkarnir eru glaðir með
atriðið sitt og finnst gaman að gera kúnstir á sviði og dansa. Svörin við
spurningunum voru Leonardo Dicaprio, Lana Del Rey, Hákon Guðni og besta svarið
var við hvern Ágúst Elvar væri til í að vera ef hann mætti vera hver sem er, þá
valdi hann sjálfan sig.
Sjötti bekkur er með ævintýralandið eins og hefðin er og eru
þau mjög spennt yfir því og hlakka alveg hrikalega mikið til. Að mati þeirra
tveggja nemenda sem við töluðum við er draugahúsið og þrautirnar skemmtilegast
en auðvitað finnast þeim samt allt æðislegt á árshátíðinni. Svörin þeirra voru
Little mix og gamli góði bítillinn John Lennon.
Þegar farið var í þriðja bekk fengum við æðisleg svör. Þeim
finnst atriðið sitt um himingeiminn æðislegt og svo gaman að fá að fræða aðra
um geiminn. Þau lærðu líka margt og mikið og finnst gaman að fræðast um
himininn. Báðum nemendunum sem við spurðum finnst skemmtilegt á árshátíðinni og
hlakka til að fara í draugahúsið, tombóluna og auðvitað að sýna leikritið og
syngja lögin. Svörin við skemmtilegu spurningum okkar voru frábær því ekki bara
fengum við Svarið Pharell en lika Guns N Roses, Guð hvað krakkar eru töff.
Fengum við líka að vita að krakkarnir elska Minions og væru sko til að vera
þeir, helst samt King Bob.
Okkar góða, skemmtilega og ekki má gleyma Flawless
skólastjóra henni Jóhönnu Maríu finnst allt skemmtilegt við árshátíðina en
gleðin og spenningurinn er toppurinn. Hún er mjög glöð með öll atriðin og er
stolt af því hve mikill metnaður er lagður í þau. Hissa vorum við þegar svar
hennar við hvern hún væri til í að leika var Svampur Sveinsson en auðvitað er
uppáhalds söngkonan æðislega dívan hún Tina Turner. Jóhanna ætlar að fara í
tombóluna en er of smeik fyrir draugahúsið.
Það er greinilegt að allir hafa gaman á árshátíðinni.
Lesa meira
04.11.2015
Hér er heildarskipulagið fyrir árshátíð Brekkuskóla 12. nóvember 2015Sýningar og ýmsar uppákomur verða víðs vegar um skólann. Hin vinsæla ævintýraveröld með
hlutaveltu, tívolíþrautum, draugahúsi, spákonu, andlitsmálun, bíó o.fl. verður á sínum stað. Að venju er það
6. bekkur sem sér um ævintýraveröldina þar sem safna fyrir ferð að Reykjum á næsta skólaári. Kaffihlaðborð 10. bekkja verður í matsal frá kl. 12:00 - 19:00. Á
hádegissýningunum verður sjoppa 10. bekkinga opin þar sem hægt
verður að fá keyptar pylsur og drykk. Aðgangseyrir á árshátíðina er enginn. Helstu verð í fjáröflun 6. og 10. bekkinga: Kaffihlaðborð: 8.-10. bekkingar og fullorðnir 1000 kr. og börn í 1. -7. bekk 500 kr. (frítt fyrir nemendur á leikskólaaldri) Pylsur í hádegi kosta 300 kr. Drykkir eru á verðbilinu 100 - 250 kr. Ævintýraveröld: Hver miði kostar 100 kr.Rétt er að taka það fram að ekki er hægt að taka við greiðslum með kortum í skólanum. Nemendur mæta í skólann á árshátíðardag:1-3 bekkur kl: 08.00-13.10 og frístund tekur við4 og 5 bekkur mætir milli kl: 08.00-10-006-8 bekkur mætir kl: 10.009-10 bekkur mætir kl: 11.00 Sjáumst í skólanum á hátíðardegi!
Lesa meira
02.11.2015
Núna er 6. bekkur að safna fyrir tombólu sem verður árshátíðardaginn 12. nóvember. Það er velkomið mæta með dót og gefa því framhaldslíf á tombólunni. Tekið er við öllu með bros á vor. Kær kveðja, Arna, Frikki og
nemendur í 6. bekk
Lesa meira
30.10.2015
Í tónmennt er 3. bekkur að vinna verkefni við lagið Siggi var úti með ærnar í haga.Fleiri myndir hér.
Lesa meira
27.10.2015
Íslenska fiðlan (fleiri myndir hér)
Nemendur í 5. bekk að prófa að spila á íslenska fiðlu
sem var fyrsta hljóðfærið sem náði útbreiðslu hér á landi á 16. eða 17.
öld.
Upphaflega hefur fiðlan að líkindum verið eintrjáningur,
holaður að innan, og opinn á þeirri hliðinni, er niður var látin snúa; síðar
var hún gerð úr þunnum fjölum, er venjulega voru negldar saman, en stundum
saumaðar saman ef þær voru mjög þunnar. Upphaflega mun hafa verið aðeins einn
strengur á fiðlunum, snúinn saman úr hrosshári; síðar breyttist þetta á ýmsan
hátt, strengjunum var fjölgað; stundum voru þeir úr vír, stundum úr sauðargirni
og stundum voru hafðir útlendir fíólínstrengir- Upphaflega voru fiðlurnar mjög
einfaldar og skrautlausar, en síðar var farið að skreyta þær nokkuð, setja
skrúfur og lykla á hausinn á þeim, í líkingu við það, sem var á útlendum fíólínum.
Enginn efi er á því, að fiðlurnar hafa verið með talsvert mismunandi lagi.
Lesa meira
22.10.2015
Nemendur í 1.-10. bekk mega koma í náttfötum og eða
með bangsa. Alþjóðlegi bangsadagurinn
er haldinn hátíðlegur á bókasöfnum víða um heim. Dagurinn fellur ár hvert á
fæðingardag Theodore(Teddy) Roosevelt fyrrverandi Bandaríkjaforseta.Sagan segir að Roosevelt hafi verið mikill skotveiðimaður og eitt sinn þegar
hann var á veiðum hafi hann vorkennt litlum varnalausum húni og sleppt honum.
Washington Post birti skopmynd af þessu atviki.Þá varð búðareigandi einn í Brooklyn í New York svo hrifinn af þessari sögu að
hann bjó til leikfangabangsa sem hann kallaði í höfuðið á Teddy eða Teddy Bear.
Lesa meira
22.10.2015
Haustfrí Brekkuskóla verður föstudaginn 23. og mánudaginn 26. október.
Lesa meira
19.10.2015
Brekkuskóli
er einn af sex skólum, frá jafnmörgum löndum, sem eru að hefja vinnu við
þriggja ára samstarfsverkefni sem styrkt er af The Erasmus + School
Partnership (áður Comenius) og er fjármagnað af Evrópusambandinu. Dagana 13.
til 16. október hittust þrettán kennarar frá samstarfslöndunum, Ítalíu,
Danmörku, Wales, Spáni, Íslandi og Þýskalandi í Blücherskólanum í Wiesbaden í
Þýskalandi.
Af hálfu Brekkuskóla
sátu Helga Sigurðardóttir og Sigríður Margrét Hlöðversdóttir fundinn.
Verkefnið
hefur hlotið nafnið Learn, Create and Communicate Lærum, sköpum og spjöllum
og byggir, eins og nafnið bendir til á því að nemendur læra um þjóðir og
menningu samstafslandanna, skapandi hugsun og vinnubrögð og þjálfast í að hafa
samskipti sín á milli í gegnum nútíma margmiðlun.
Lesa meira
16.10.2015
10. bekkur heldur Bingó á sal Brekkuskóla þriðjudaginn 20. okt klukkan 18:00-20:00. Bingóspjad kr. 500.-Pylsa, gos eða svali kr. 500.-
Lesa meira
13.10.2015
Við í 10. bekk erum að selja skólapeysur til söfnunar fyrir skólaferðalagið okkar.
Hver peysa kostar 6000.- kr.
Mátunar/pöntunardagur verður í dag fimmtudag 15. október frá kl. 16-18.
Engar peysur verða seldar eftir áramót.
Greiða þarf við pöntun, því miður er enginn posi.
Bestu kveðjur - peysunefndin
Lesa meira