Fréttir

Erasmus+ styrkur til starfsþróunar

Brekkuskóla hefur hlotið Erasmus+ styrk í flokknum „Nám og þjálfun“. Upphæð styrksins er ríflega 27 þúsund evrur og er verkefni til tveggja ára. Í ummælum matsaðila segir meðal annars: „Skólinn virðist hafa metnaðarfulla alþjóðastefnu og því áhugavert að styrkja svona verkefni. Sérstaklega áhugavert er ,,job shadowing" í Svíþjóð þar sem foreldrar eru virkjaðir.“ Umsóknin hlaut  90 stig af 100 mögulegum. Styrkféð verður nýtt til endurmenntunar starfsfólks.
Lesa meira

Heimsókn í 1. bekk

Við erum rík af foreldrum í Brekkuskóla. Margir þeirra hafa komið við hjá okkur og glatt börnin og frætt á ýmsan hátt í gegnum tíðina. Ein slík heimsókn var hjá 1. árgangi í morgun þegar Hjalti Jónsson, einn faðirinn í árgangnum leit við með gítarinn í samverustund og tók með nemendum og kennurum lagið. Það var hress hópur sem kallaði á vorið þennan morguninn. Sjá myndskeið.
Lesa meira

Upplestrarhátíð 4. bekkjar

Fimmtudaginn 21. maí 2015 fór fram upplestrarhátíð í 4. bekk. Hátíðin er liður í því að efla börnin í að koma fram og lesa upphátt fyrir áheyrendur. Hátíðin var blanda af upplestri, kórlestri og tónlistaratriðum. Aðstandendum barnanna var boðið á sal til að hlusta og var vel sótt. Myndir frá hátíðinni
Lesa meira

Gaman og gagn á skólasafni

Skólasafnvörðurinn okkar hún Sigríður Margrét Hlöðversdóttir hefur sett upp facebooksíðu fyrir safnið þar sem hún vekur athygli á bókum, rithöfundum, verkefnum ofl. Endilega like-ið síðuna og bætist í hóp þeirra sem vilja fylgjast með því sem er að gerast á skólasafninu. Facebooksíða skólasafns Brekkuskóla "Gaman og gagn á skólasafni"
Lesa meira

Fréttabréf - maí/júní

Fréttabréf Brekkuskóla fyrir maí/júní er komið út. Í blaðinu er að finna pistil frá skólastjóra, reglur um hjólaleiktæki, 3. hluta niðurstaðna frá skólaþingi, gjöf frá foreldrafélaginu að ógleymdu viðburðadagatali. Tapað - fundið Við bendum foreldrum á að óskilamunir verða lagðir fram á borð á göngum á næstunni. Hvetjum við ykkur til að koma við og skoða hvort þið kannist við eitthvað af þeim. Fréttabréf maí/júní 2015
Lesa meira

Brekkuskólaleikar 2015

Myndir frá Brekkuskólaleikunum eru komnar á vefinn okkar. Dagurinn var mjög vel heppnaður og nemendur almennt virkir og glaðir.
Lesa meira

Nordplus í Lettlandi

Hópur kennara og nemenda úr Brekkuskóla er nú staddur í Lettlandi á vegum Nordplus verkefnisins sem Brekkuskóli er þátttakandi í ásamt Noregi og Lettalandi. Hópurinn fór í gær í svokallaðan Tarsangarð. Nánar um verkefnið á vefsíðu verkefnisins og á facebooksíðu hópsins.
Lesa meira

Sköpun bernskunnar

Vonast til að sjá ykkur sem flest á opnun sýningarinnar Sköpun bernskunnar kl. 15, laugardaginn 9. maí, í Ketilhúsinu í Listagilinu. Hér með vil ég þakka frábært samstarf allra myndmenntakennara í grunnskólum bæjarins við okkur í Listasafninu á Akureyri. Safnfræðslu er best að panta á netfanginu palina@listak.isVið höfum opið alla virka daga frá kl. 8-17 fyrir safnafræðslu og byrjað er nú þegar að panta tíma. Sýningin er ótrúlega fjölbreytt og lífleg og hentar vel öllum skólastigum. Með bestu kveðjum, Guðrún Pálína Guðmundsdóttir Fræðslufulltrúi Listasafnsins á Akureyri
Lesa meira

Útileikföng

Foreldrafélag Brekkuskóla kom færandi hendi í vikunni með útileikföng. Um er að ræða húlla hopp hringi, handbolta, brennibolta og snú-snú bönd. Starfsfólk og nemendur Brekkuskóla þakka kærlega fyrir gjöfina sem á örugglega eftir að koma sér vel í útiverunni. Takk, takk.
Lesa meira

Vorskóli 2015

Það var stór dagur í lífi þeirra sem hófu skólagöngu sína í Brekkuskóla í gær. Brekkuskóli býður innrituðum nemendum sem fara í 1. bekk í haust að koma nú á vordögum í tveggja klukkustunda heimsókn, tvo daga í röð til að kynnast kennurum sínum og umhverfinu enn betur. Hér má sjá nokkrar myndir af nýju skólabörnunum okkar. Kennarar árgangs 2009 verða þær Ástrós Guðmundsdóttir, Hjördís Óladóttir, Hulda Frímannsdóttir og Rósa Mjöll heimisdóttir, auk fleiri kennara sem koma að kennslu í list- og verkgreinum.
Lesa meira