Ef veður eru válynd er reglan
sú að foreldrar meta hvort þeir treysta börnunum í eða úr skóla. Starfsfólk er til taks í skólanum en skóla er
ekki aflýst nema í allra verstu veðrum, og er það þá gert með auglýsingu í útvarpi fyrir alla grunnskóla
Akureyrarbæjar.Ef foreldrar meta það svo að þeir treysti ekki barni sínu í skólann þá eru þeir beðnir um að tilkynna það með tölvupósti á brekkuskoli@akureyri.is eða í síma 4622525 og skráð verður leyfi á barnið.