Fréttir

Valgreinakvöld síðasta miðvikudag

Lokaverkefni hjá valgreinunum: Söngur og framkoma, tónlist og tölvur og stórhljómsveit. Félagsmálaval sá um umgjörð hátíðarinnar sem og auglýsingar. Heimilisfræðihópur sá um veitingar fyrir þátttakenndur og 10. bekkur var með kaffi og vöfflusölu. Heimir, Hanna Dóra og Anna Guðný voru kennarar valhópanna og tókst kvöldið mjög vel að þeirra sögn. Nemendur stóðu sig með mikilli prýði. Myndir af kvöldinu má sjá hér...
Lesa meira

Birna kennari blakkona ársins

Birna Baldursdóttir úr KA og Emil Gunnarsson úr Stjörnunni voru í dag útnefnd blakkona og blakmaður ársins 2010 af Blaksambandi Íslands.
Lesa meira

1. bekkur að baka

1. bekkur fór í heimilsfræðistofuna í vikunni og bakaði "jólatré". Nemendur sem og kennarar skemmtu sér konunglega og lagði dásamlegan ilm um ganginn. Nemendur fengu síðan að fara með afraksturinn heim. Myndir má sjá hér...
Lesa meira

Afmælisboð

Kæru foreldrar og forráðamenn. Ákveðið hefur verið af stjórnendum og kennurum að beina því til ykkar að senda nemendur ekki með boðskort í afmæli í skólann til dreifingar. Slíkt hefur valdið vandræðum. Hægt er að nota mentor til að senda á foreldra með því að haka við foreldra sem eiga að fá póst og senda boðið rafrænt. Kveðja, stjórnendur
Lesa meira

Smásagnakeppni meðal barna í 5. bekk

Í tilefni af 10 ára afmæli Íslandsklukkunnar var efnt til smásagnakeppni meðal barna í 5. bekk í samstarfi Háskólans á Akureyri og Akureyrarbæjar við grunnskóla Akureyrar. Þema keppninnar var Framtíðarsýn-Akureyri 2020 en sigurvegari keppninnar hlýtur bókarverðlaun og þann heiður að hringja Íslandsklukkunni þann 1. desember. Annað sætið hlaut Sigurlaug Birta í Brekkuskóla. Sagan hennar þykir frumleg en um teiknimyndasögu er að ræða. Myndirnar eru vandaðar og tengingar milli myndaramma góðar. Ákveðin framtíðarsýn kemur myndrænt fram og  allur frágangur góður. Þriðja sætið hlaut  Ari Orrason í Brekkuskóla. Sagan hans er vel upp byggð með góðum myndlíkingum. Söguþráður er frumlegur og fyndinn. Fyrsta sæti fór í Glerárskóla en það var Viðar Guðbjörn Jóhannsson sem skrifaði þá sögu.
Lesa meira

Morgunmóttaka hjá 4. bekk á föstudaginn

Næstkomandi föstudag verður 4. bekkur með morgunmóttökuna sína. Morgunmóttökur eru frá klukkan 08:00-09:00 og er þá nokkurskonar opið hús. Foreldrar geta komið með barninu sínu, fengið sér kaffi og brauðbollu í matsalnum og litið við í stofu. Oft eru nemendur með verkefni til sýnis eða kynna það sem þau hafa verið að vinna að. Verðskrá fyrir brauðbollu er 150.- kr og kaffi 50.- kr. Ágóði rennur í sjóð hjá 6. bekk.
Lesa meira

Morgunmóttaka hjá 8.-10.bekk 22. nóv uppbyggingarkynning

Morgunmóttökur eru frá klukkan 08:00-09:00 og er þá nokkurskonar opið hús. Foreldrar geta komið með barninu sínu, fengið sér kaffi og brauðbollu í matsalnum og litið við í stofu. Oft eru nemendur með verkefni til sýnis eða kynna það sem þau hafa verið að vinna að. Verðskrá fyrir brauðbollu er 150.- kr og kaffi 50.- kr. Ágóði rennur í sjóð hjá 10. bekk.
Lesa meira

Morgunmóttaka í 1. bekk

Mikið var um gleði þegar foreldrar mættu í morgunmóttöku hjá 1. bekk á þriðjudaginn. Foreldrar settust á skólabekk og lærðu um þarfirnar undir handleiðslu barna sinna.
Lesa meira

Framhald verður af hreyfistrætó

N4 ætlar að ganga með Hreyfistrætó í næstu viku Skráning í hreyfistrætó - þátttaka foreldra og nemenda er hér.
Lesa meira