29.10.2010
Morgunmóttaka verður hjá 1.bekk þriðjudaginn 9. nóv. niðri í stofum þar verður foreldrum boðið upp á kaffisopa.
Morgunmóttaka verður hjá 7.bekk föstudaginn 12. nóv.
Lesa meira
22.10.2010
Þá er seinni degi þemadaga að ljúka...
Lesa meira
05.10.2010
Kæru foreldrar.
Nú er „hreyfistrætóinn“ kominn í gang. Þegar hafa nokkrir foreldrar skráð sig til leiks en betur má ef duga skal. Við hvetjum
alla foreldra í til að skrá sig inn á heimasíðu Brekkuskóla (www.brekkuskoli.is) undir tenglinum „Hreyfistrætó“. Þar
má einnig sjá kort með leiðunum.
Skráningin er einföld og aðgengileg.
1. Smella HÉR2. Finna ykkar leið – gula
(Helgamagrastræti- Brekkuskóli), rauða (Þórunnarstræti-Ásvegur- Brekkuskóli), græna (Langamýri-Brekkuskóli), bláa
(Álfabyggð-Brekkuskóli).
3. Velja dag sem ykkur hentar . Skrá nafn og símanúmer . Smella á save.
Með góðri kveðju, undirbúningsnefnd
Nánar má lesa um Hreyfistrætó hér á heimasíðu Brekkuskóla og í bréfi sem
foreldrar fengu í tölvupósti síðasta fimmtudag.
Lesa meira
30.09.2010
Nú á haustdögum mun verða gerð tilraun með verkefnið „hreyfistrætó“, en megin markmið þess er að hvetja
öll börn til að ganga í skólann og á sama tíma að minnka umferð við Brekkuskóla. Valdar hafa verið 4 gönguleiðir og
merktar inn á kort ásamt „strætóstöðvum“og er ætlunin að eitt foreldri taki að sér að ganga eina leið einu sinni til
tvisvar á 6 vikna tímabili og því fylgja börnunum í skólann og gæta að öryggi þeirra. Eftir því sem nær dregur
skólanum bætast fleiri börn við í hópinn en þau bíða á sér merktum "stöðvum" eftir að hópurinn fari
framhjá. Stöðvarnar hafa verið staðsettar með það í huga að börn þurfi ekki yfir umferðaþungar götur frá heimili
sínu.
Lesa meira
18.09.2010
Þann 1. september sl. breyttist útivistartími barna og unglinga. Börn yngri en 12 ára mega ekki vera úti eftir kl. 20 og unglingar yngri en 16 ára
mega ekki vera úti eftir kl.22.
Reglum um útivistartímann er ætlað að standa vörð um hag barna og unglinga og styðja við foreldra í uppeldishlutverki sínu.
Mikilvægt er að börn og unglingar fái næga hvíld til að sinna skóla og öðrum þeim fjölmörgu verkefnum sem þau fást
við í daglegu lífi sínu. Því er jafnframt mikilvægt fyrir foreldra og aðra uppalendur að huga að „rafrænum
útivistartíma“ barna og unglinga, þ.e. tölvu- og farsíma! notkun þeirra á kvöldin.
SAMAN-hópurinn hvetur foreldra til að standa saman um útivistartímann og ræða saman og við börn
sín og unglinga um þessi mál.
Lesa meira
07.09.2010
Í vikunni fór 10. HDM í smá veiðiferð. Fengurinn var síðan krufinn og áhuginn var mikill!
Sjá myndir hér...
Lesa meira
03.09.2010
Foreldranámskeið
fyrir foreldra barna með ofvirkni og/eða athyglisbrest á aldrinum 5 – 10 ára. PMT- Styðjandi foreldrafærni (Parent Management
Training)
PMT foreldrafærninámskeið fyrir foreldra barna með með ADHD greiningu og eiga við hegðunarvanda að stríða verður haldið nú í
september. Um er að ræða hópnámskeið sem nær yfir 8 vikur, í tvær og hálf klukkustund í senn. Námskeiðið hefst
þann 28.september kl. 19.30 til 22.00 og lýkur 16. október. Námskeiðið er haldið í salnum í Brekkuskóla.
Lesa meira
02.09.2010
9. ÞH úti að læra stærðfræði. Kennarar eru Sævar og Valgerður.
Sjá fleiri myndir hér...
Lesa meira
31.08.2010
Miðvikudaginn 1. sept fer 6. GÞ og föstudaginn 3. sept fer 6. KI í siglingu með Húna II.
Nemendur í 6.bekk grunnskólanna á Akureyri fara á haustdögum í vettvangsferð á sjó á bátnum Húna II. Það
eru Hollvinir Húna II. sem standa að ferðunum í samstarfi við Háskólann á Akureyri og Skóladeild Akureyrarbæjar með stuðningi
frá Saga Capital.
Lesa meira
23.08.2010
Tímatafla fyrir skólabílinn veturinn 2010-2011 er komin, sjá lesa meira...
Lesa meira