Birna kennari blakkona ársins

Birna Baldursdóttir úr KA og Emil Gunnarsson úr Stjörnunni voru í dag útnefnd blakkona og blakmaður ársins 2010 af Blaksambandi Íslands.

Á  vef BLÍ eru eftirfarandi umsagnir um Birnu og Emil:

Birna er lykilleikmaður í liði KA á Akureyri. Liðið lék til úrslita í Bridgestonebikarnum 2010 og lék Birna stórt hlutverk í þeim leik. Að auki var hún einn af máttarstólpunum í kvennalandsliði Íslands sem lék í undankeppni Evrópumóts Smáþjóða. Birna á að baki 37 landsleiki í blaki fyrir Ísland.

Birna tók þátt í öllum stigamótum sumarsins í strandblaki og varð hún stigameistari. Auk þess varð hún Íslandsmeistari í strandblaki ásamt félaga sínum, Fríðu Sigurðardóttur.

Birna er fyrirmynd margra íþróttamanna og hefur tileinkað íþróttum allan sinn frítíma. Hún hefur jafnframt hjálpað mikið til við uppbyggingu meistaraflokksliðs KA undanfarin ár.