Viðtalsundirbúningur

Eins og undanfarin ár munum við biðja ykkur um að svara spurningum til að undibúa samræðu nemenda, foreldra og kennara sem fram fer dagana 22. ágúst og 23. ágúst 2011. Undirbúningurinn fer fram rafrænt á vefsíðunni www.mentor.is. Ef þið hafið ekki aðgang eða aðstöðu til að svara heima þá bendum við á að opið verður í tölvuveri við skólabókasafn báða viðtalsdagana. Þar getið þið jafnframt fengið aðstoð ef á þarf að halda.

Leiðbeiningar:

  1. Vefslóðwww.mentor.is 
  2. Skráið ykkur inn með aðgangi nemandans. Nemendaaðganginn finnið þið með því að fara inn á ykkar aðgangi sem foreldrar.

Foreldraaðgangurer kennitala foreldris og lykilorðið eiga foreldrar að hafa          fengið. Tapað lykilorð er hægt að nálgast hjá ritara skólans steingerdur@akmennt.is eða í síma 462-2525

Nemendaaðgangur  Notendanafnið er kennitala barnsins og lykilorðið má finna undir myndinni af barninu.

Foreldrar 1. bekkinga sem eiga ekki systkini í skólanum nú þegar fá aðgang að mentor sendan í netpósti.

  1. Þegar þið eruð komin inn á nemendaaðganginum: Veljið þá ”Leiðsagnarmat” til vinstri á valmyndinni.
  2. Veljið ”Viðtal”nafn bekks”  haust 2011”
  3. Svarið spurningunum með nemandanum.

Athugið að  smella á "skrá" neðst á síðunni öðru hverju meðan þið svarið spurningalistanum. Svörin geymast ekki fyrr en smellt er á "skrá" eða "áfram" og ef lengi er setið við í einu án þess að gera þetta, hættir kerfið að geyma upplýsingar sem skráðar eru inn.