09.11.2011
Smellið á myndina hér fyrir neðan til að fara á hugmyndasíðu.
Lesa meira
03.11.2011
Fréttabréf Brekkuskóla er komið út. Fréttabréfið má nálgast hér. Eldri
Fréttabréf má nálgast hér.
Lesa meira
01.11.2011
Á vefnum http://www.tonlist.is/Audiobook er að finna úrval hljóðbóka sem bæði nemendur,
foreldrar og starfsmenn geta nýtt sér.
Hljóðbækur eru mjög góðar fyrir önnum kafna, lesblinda og þá sem hafa verið áhugalitlir um lestur.
Fram að þessu hefur verið mjög erfitt að nálgast hljóðbækur með nýju efni og gömlu, fyrir "fólk án greiningar"en
nú er öldin önnur!
Lesa meira
01.11.2011
Á unglingastigi fer nú fram mat á miðri önn. Matið fer fram í Mentor undir "leiðsagnarmat". Aðstandendur nemenda
hafa þegar fengið senda ítrekun um að skrá með nemendum mat í hverri námsgrein fyrir föstudaginn 4. nóvember. Nánari leiðbeiningar
er að finna í Fréttabréfi Brekkuskóla fyrr á þessu ári sem nálgast má hér. Leiðsagnarmat á yngsta og miðstigi fer fram síðar í þessum mánuði og
verður aðstandendum gert viðvart þegar það hefur verið opnað.
Lesa meira
30.10.2011
Nýafstaðið vetrarfrí og starfsdagar í Brekkuskóla voru nýttir af stórum hópi starfsfólks úr Brekkuskóla til
að sækja námskeið í Bandaríkjunum í Uppbyggingarstefnunni sem er agastjórnunarstefna skólans.
Lesa meira
14.10.2011
Í dag var brunaæfing í skólanum. Æfingin gekk mjög vel. Nemendur og starfsmenn fóru út samkvæmt rýmingaráætlun
skólans. Nú setjast stjórnendur og umsjónarmaður skólahúsnæðis niður og fara yfir hvað má gera enn betur. Til dæmis kom
í ljós að nokkur hjól nemenda voru fyrir aðalandyri hússins sem er ein rýmingarleiðin, en tilfinnanlega vantar hjólagrindur við aðaldyr
(vesturdyr) skólans.
Lesa meira
12.10.2011
Félagsmiðstöðin Trója, sem staðsett er í Rósenborg (gamla Barnaskólanum) þjónar Brekkuskóla, Lundarskóla,
Naustaskóla og Oddeyrarskóla.
Lesa meira
11.10.2011
Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar býður börnum með ADHD að taka þátt í námskeiði til að efla færni á ýmsum
sviðum. Námskeiðið er fyrir börn fædd árið 2002 og 2003 og eru 6 börn í hverjum hóp. Áhersla er lögð á að auka
færni barna í félagslegum samskiptum, skapstillingu, sjálfsstjórn og að bæta athyglisgetu þeirra. Hópurinn hittist tvisvar í viku 2
tíma í senn, í 5 vikur (10 skipti alls) með tveimur þjálfurum. Eftirfarandi þættir eru teknir fyrir með börnunum í litlum
hópum:
Lesa meira
07.10.2011
Nýjar myndir er finna á myndasíðunni okkar hér fyrir ofan. Þar er m.a. að finna myndir af 1. árgangi sem hóf grunnskólagöngu
sína nú í haust. Það er greinilegt að þau hafa nóg við að vera og takast á við fjölbreytt verkefni. Sjá myndir hér.
Lesa meira
07.10.2011
Í Brekkuskóla tölum við gjarnan um hegðun eftir litum. Þannig náum við að hjálpa nemendur að útskýra og skilja
æskilega og óæskilega hegðun. Hegðun eftir litum er unnin upp úr agastjórnunarstefnu skólans en einnig úr Cat kassanum,
Olweusaráætlun gegn einelti og Uppbyggingarstefnunni. Lýsing á hverjum lit fyrir sig má nálgast hér.
Lesa meira