Fréttir

Fyrsta heimsókn 5 ára

Það voru flottir leikskólanemendur frá  Hólmasól sem mættu í Brekkuskóla í morgun. Bergþóra aðstoðarskólastjóri og Bryndís forstöðukona Frístundar tóku á móti þeim og buðu þau velkomin.  Þau fengu að sjá fjölbreytta verkefnavinnu sem unnin er í skólanum. Þau fóru í danstíma, heimilisfræði, myndmennt, heimsóttu skólastjóra og skrifstofu skólans, fóru í heimsókn í tíma í 1. bekk og léku sér síðan smá stund í Frístund. Næsta heimsókn verður í 23. janúar, en þá munu fleiri nemendur Hólmasólar koma í heimsókn ásamt væntanlegum nemendum frá öðrum leikskólum sem hyggja á nám hér. Netpóstur verður sendur til foreldra sem hafa skráð barn sitt í heimsókn úr öðrum leikskólum. Fleiri myndir frá heimsókninni
Lesa meira

Fleiri drekameistarar

Drekameistarakeppnin heldur áfram. Nú er það Bjarki Hólm Heiðdísar Freysson 3. HÓ sem hlaut drekameistaratitil í 1. gráðu hjá skólasafnverði í desember rétt fyrir jólaleyfi. Bjarki notaði jólaleyfið vel og hefur hann nú jafnframt lokið 2. gráðu. Til hamingju með það Bjarki!
Lesa meira

Margföldunarrallý í 4. bekk

Í 4. bekk fer fram þjálfun í margföldunartöflunni. Það er gert með þeim hætti að börnin búa sér til bók með eyðublaði sem þau fá útfyllt af þeim sem hlusta á þau þylja töfluna. Hér má sjá upptöku af því hvernig þetta fer fram og hér má finna viðtal við einn nemandann um verkefnið. 
Lesa meira

Sæhestar

Skólanum barst skemmtileg gjöf frá foreldri sem var að koma frá Kína. Gjöfin er þurrkaðir sæhestar sem eru hingað komnir alla leið hingað í Brekkuskóla. Sæhestar eru að mörgu leyti mjög sérstakar lífverur. Sæhestarnir eru nú á ferðalagi milli kennara skólans þar sem nemendur munu fá að koma við og fræðast um þá. Við þökkum kærlega fyrir þessa skemmtilegu sendingu. Fræðsluefni um sæhesta hefur verið lagt fram á skólasafni skólans til skoðunar. Þegar ferðalagi sæhestanna verður lokið verða þeir settir í glerskápana við listgreinaganginn í miðju skólans. Sæhestar eru allar tegundir sjávarfiska af sérstæðri ætt sem nefnist á latínu Syngnathidae og undirættinni Hypocampinae eða sæhestaætt. Innan þessarar ættar er einnig hópur fiska sem nefnast á ensku pipefish eða pípufiskar, þeir eru mjóslegnir og langir og minna á sæhesta í útliti en eru flokkaðir í aðra undirætt sem nefnist Syngnathinae. Um 215 tegundir eru innan ættarinnarSyngnathidae.
Lesa meira

VMA - samstarf

Í dag hófst valgreinin Raffræði í VMA sem er hluti af samstarfsverkefni Brekkuskóla og VMA í vetur. Valinu er skipt í tvo námshópa þar sem undirtektir voru afar góðar. Fyrir áramót var ein valgrein kennd í VMA í smíðum og önnur valgrein í náttúrufræðigreinum sem kennd var í Brekkuskóla en kennarar komu frá VMA. Þetta samstarfsverkefni var í undirbúningi á síðasta skólaári og nú höfum við safnað upp reynslu sem við leggjum í bankann okkar til framtíðar. Það voru áhugasamir drengir sem fóru með aðstoðarskólastjóra í fyrsta tímann í raffræði eftir hádegi í dag. Fyrsti tíminn hófst á kennslu um muninn á rafvirkjun og rafeindavirkjun. Í léttu innskoti á undan var umræðan tekin um það hvernig kennitölur okkar eru upp byggðar. Skemmtileg byrjun og vonandi ná drengirnir markmiðum sínum í þessari spennandi valgrein.  Sjá myndir hér. Kennari í raffræði er Davíð Ingi Guðmundsson.
Lesa meira

Skákkennsla fyrir 4. - 6. bekk

Andri Freyr mun aftur bjóða upp á skákkennslu fyrir 4.- 6. bekk í janúar. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið stella@akureyri.is. Það eru allir velkomnir hvort sem þeir hafa tekið þátt áður eða ekki. Föstudaginn 10. janúar kl. 13:15 í 40-60 mínútur á bókasafninu Föstudaginn 17. janúar kl. 13:15 í 40-60 mínútur á bókasafninu Föstudaginn 24. janúar kl. 13:15 í 40-60 mínútur á bókasafninu Föstudaginn 31. janúar kl. 13:15 í 40-60 mínútur á bókasafninu Til upplýsinga og upprifjunar þá er Andri Freyr fyrrverandi nemandi í 10. bekk  og hefur hann telft skák í 8 ár. Hann er fyrrverandi skólaskákmeistari Brekkuskóla sem og skólaskákmeistari Akureyrar ásamt því að vera kjördæmismeistari Norðurlands eystra.
Lesa meira

Heimsóknir barna fædd 2008

Brekkuskóli er í samstarfi við leikskólann Hólmasól um undirbúning skólabyrjunar nemenda fædd árið 2008 í grunnskóla. Foreldrar úr öðrum leikskólum en Hólmasól sem hyggjast innrita barn sitt í Brekkuskóla geta einnig komið með barn sitt í þessar heimsóknir. Fyrirhugaðar fyrstu heimsóknir eru 16. og 23. janúar 2014.  
Lesa meira

Gildi mánaðarins

Gildi mánaðarins er Umhyggja. Í stefnu og sýn Brekkuskóla segir: Brekkuskóli er samfélag þar sem við stöndum saman og sýnum umhyggju. Við dæmum ekki og erum tilbúin til að aðstoða hvert annað. Í uppbyggingarstefnunni er m.a. gengið út frá grunnþörfinni að tilheyra (e. belonging). Þessi þörf er mjög missterk eftir einstaklingum og er nátengd gildinu umhyggja.
Lesa meira

Fréttabréf - janúar

Fréttabréf janúarmánaðar er komið út. Að þessu sinni birtum við niðurstöður úr foreldrahópavinnu þar sem hlutverk heimila annars vegar og hlutverk skóla hins vegar voru greind. Svipmyndir eru birtar frá árshátíð og matseðill janúarmánaðar ásamt viðburðadagatali er einnig á sínum stað. Fréttabréf janúarmánaðar.
Lesa meira

Fæðisgjöld - hækkun

Bæjarstjórn hefur ákveðið að draga til baka áður ákveðna gjaldskrárhækkun á vistunargjöldum í Frístund sem taka áttu gildi frá og með áramótum.  Gjöld fyrir Frístund verða því óbreytt eða 330 kr. klukkustundin.  Fæðisgjöld munu hins vegar hækka um 6% og mun því hver máltíð í annaráskrift kosta 395 kr. Stök máltíð (minnst 10 skipti) kostar nú 530 kr. máltíðin, en var 501 kr.
Lesa meira