Fréttir

Vikupóstur úr 5. bekk

Takk fyrir komuna í skólann miðvikudaginn 16. október.  Við vorum mjög ánægðar með 1-5-8 fundina. Margt gagnlegt var rætt m.a. afmælisboð, sígilt umræðuefni.
Lesa meira

Sænskur rithöfundur í heimsókn

Kim M. Kimselius er sænskur rithöfundur sem kom í heimsókn í Brekkuskóla dagana 16. og 17. október. Norræna félagið á Íslandi, í samstarfi við Norrænu upplýsingaskrifstofuna og Norræna félagið á Akureyri, stóð fyrir heimsókninni og er markmiðið að auka þekkingu barna og unglinga á Norðulandamálum.
Lesa meira

Framtíðarsýn í upplýsinga- og samskiptatækni

Kennarar Brekkuskóla ræða framtíðarsýn í upplýsinga- og samskiptatækni í skólastarfi á kennarafundi. Unnið var í hópum og voru niðurstöður skráðar í rafrænt samskiptanet todaysmeet.com Niðurstöður verða nýttar við áframhaldandi vinnu.
Lesa meira

Drekameistarinn

Á skólasafni Brekkuskóla hafa nokkrir bókatitllar verið listaðir upp í þrjár mismunandi "drekagráður". Nemandi tekur þátt með því að merkja við þær bækur sem hann hefur lesið í gráðunni sem hann velur sér. Þegar hann hefur lokið við að lesa þær allar fær hann drekameistaratitil!  Sjá nánar um drekagráðurnar hér.  
Lesa meira

Hljóðbókasafn Íslands

Hljóðbókasafn Íslands er ríkisstofnun sem heyrir undir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Lögbundið hlutverk safnsins er að opna þeim sem ekki geta nýtt sér prentað letur, aðgang að prentuðu máli, á hljóðbók eða öðru aðgengilegu formi. Lánþegar safnsins eru sjónskertir, lesblindir og aðrir sem glíma við prentleturshömlun af einhverju tagi. Safnið framleiðir námsbækur fyrir framhaldsskólanema á hljóðbók eða rafrænu formi og leggur sérstaka áherslu á þjónustu við nemendur.  Árlega eru lesnar inn um það bil 300 hljóðbækur á safninu. Jafnframt eru erlendar námsbækur framleiddar með hjálp talgervilstækni. Lánþegar safnsins geta auk þess fengið lánað efni frá hljóðbókasöfnum á öllum Norðurlöndunum. Nemendur með lesblindugreiningu fá aðgang að hljóðbókasafninu þegar greining liggur fyrir.
Lesa meira

Ljósmyndari fimmtudaginn 3. okt.

Íris Pétursdóttir ljósmyndari kemur til okkar fimmtudaginn 3. október og tekur myndir af 1., 4., 7. og 10. bekk. Foreldrar geta í framhaldinu fengið keyptar myndir af börnum sínum og bekk/árgangi þeirra. Pakkinn fyrir hvern nemanda inniheldur: Bekkjarmynd í str. 20x25cm með nöfnum allra nemenda ásamt kennara einstaklingsmynd, 1 stk. 13x18cm og 2 stk. 10x15cm Þegar myndirnar eru tilbúnar fá foreldrar tilkynningu um það í netpósti frá skólanum þar sem allar myndir bekkjarins liggja frammi til skoðunar. Hægt verður að kaup þær hjá ljósmyndaranum ákveðinn dag í skólanum. Allar frekari upplýsingar verða sendar foreldrum í netpósti þegar þar að kemur.  
Lesa meira

Fréttabréf - október

Októberfréttabréf skólans er komið út. Í blaðinu er að finna ýmislegt um skólastarfið í liðnum mánuði og það helsta sem framundan er. Við vekjum sérstaka athygli á auglýsingu um komu ljósmyndara í þessari viku. Í Fréttabréfinu fær skólasamfélagið einnig viðburðadagal sem gott er að nýta í tengslum við annað skipulag fjölskyldunnar. Fréttabréfið má nálgast hér. Með kveðju úr skólanum! Stjórnendur og starfsfólk Brekkuskóla
Lesa meira

Myndir frá liðinni viku

Hér má finna nokkrar myndir frá liðinni viku. Berjaverkefni og bekkjarsáttmáli - 1. bekkur Úr setustofu nemenda Saumar og smíðar Danska í 9. og 10. bekk
Lesa meira

Nordplus kennslustund

Nemendur í 8. bekk fengu kennslustund í Nordplus verkefninu þar sem nemendur í Lettlandi voru í samskiptum við þau. Nemendurnir í 8. bekk og tíu nemendur í Lettlandi áttu samskipti á ensku í hugbúnaðinum "todaysmeeting" og notuðu iPad spjaldtölvur. Nemendunum var skipt upp í 5 hópa og var hver hópur með 2-3 spjaldtölvur. Helena og Margrét Þóra kennarar voru staddar í Lettlandi og áttu samskipti við afleysingakennara og nemendur hér heima í gegnum "Facetime" í spjaldtölvum. Þennan dag átti einn nemandinn í 8. bekk afmæli og nemendur í Lettlandi sungu fyrir hana afmælissöng á þeirra tungumáli. Bekkjarfélagar hér heima sungu síðan einnig á íslensku í áheyrn Lettanna. Hér má sjá nokkrar myndir frá verkefninu.
Lesa meira

Sigurvegarar gönguátaks

Í Brekkuskóla fór fram sérstök skráning á því hve margir nemendur komu gangandi/hjólandi o.s.frv. í skólann vikuna 9. - 13. september. Það var gert til að leggja sérstaka áherslu á mikilvægi hreyfingar og örugga umferð við skólann. Sá bekkur sem hlutfallslega kom oftast gangandi/hjólandi o.s.frv. í skólann fékk gullskóna sem viðurkenningu. Í fyrra skiptu tveir bekkir með sér viðurkenningunni og fengu sippubönd, bolta og snú snú bönd að launum. Í ár varð einn bekkur, 6. ÁÁ, hlutskarpastur þar sem nemendur mættu 100% gangandi, hjólandi eða á hjólaleiktæki í skólann. Langflestir koma gangandi í skólann eða að meðaltali um 88% nemenda. Verkefnið er unnið í tengslum við átakið "Göngum í skólann" www.gongumiskolann.is sjá einnig frétt frá okkur á þeirri vefsíðu. Umsjón með keppninni höfðu íþróttakennarar skólans í samráði við skólastjórnendur.
Lesa meira