01.12.2014
Fréttabréf desembermánaðar er komið út. Meðal efnis er dagskrá litlu jóla 19. desember og
viðburðadagatal. Lögð er áhersla á mikilvægi endurskinsmerkja þegar við erum utandyra í snjólausu skammdeginu og birt eru sýnishorn
af myndum frá árshátíð skólans sem haldin var í nóvember. Fleiri myndir má nálgast hér á vef skólans.
Lesa meira
01.12.2014
Af vef Námsgagnastofnunar: Í tilefni fullveldisdagsins 1. desember er upplagt að skoða vef Námsgagnastofnunar
með áhugaverðu efni sem tengist deginum. Svanhildur Kr. Sverrisdóttir og Ingólfur Steinsson eiga heiðurinn að vefnum og þar má finna ýmsan
fróðleik, kennsluhugmyndir, ljóð og fleira.
Lesa meira
28.11.2014
Nú er aðventan í þann mund að ganga í garð og margir bíða óþreyjufullir eftir jólunum. Þá er ekki úr vegi
að stytta sér stundir og glíma við skemmtilegar þrautir. Athugið að jóladagatalið verður ekki virkt fyrr en 1. desember.
Opna síðuna í Dagsins önn
Lesa meira
05.12.2014
Föstudaginn 5. desember verður Dagur
íslenskrar tónlistar haldinn hátíðlegur og af því tilefni munu allar útvarpsstöðvar landsins spila þrjú íslensk
lög samtímis kl. 11.15. Íslendingar geta því sameinast við viðtækin og sungið lög til heiðurs íslenskri tónlist.
Markmiðið er að fá sem flesta til að kveikja á útvarpinu klukkan 11.15 og syngja með. Tilvalið er að safnast saman á sal þar sem
slíkur er til afnota til að allir geti sameinast í söng. Í Brekkuskóla ætlum við að vera með söngsal þennan
dag.
Nánara skipulag: kl. 11:10 1. - 3. bekkur
kl. 11:40 - 12:00 8. - 10. bekkur - ath. breyting!
kl. 12:00 - 12:20 4. - 6. bekkur
Hér er auglýsing með dagskránni. Nú er bara að æfa :-)
Lesa meira
19.11.2014
Fimmtudaginn 20. nóvember kl. 09:00 var rýmingaræfing/brunaæfing í Brekkuskóla. Samkvæmt rýmingaráætlun fara allir nemendur skipulega
í röð, þegar út er komið, á sparkvellinum og malbikaða vellinum við hliðina á honum. Myndina tók Hjördís
Óladóttir kennari.
Lesa meira
24.11.2014
Starfsdagur verður í Brekkuskóla mánudaginn 24. nóvember. Frístund er lokuð þennan dag.
Lesa meira
14.11.2014
Föstudaginn 14. nóvember verður sameiginleg dagskrá hjá 8. - 10. bekk grunnskólanna á Akureyri.
Hingað í Brekkuskóla koma 8. bekkingar, 9. bekkur fer í Síðuskóla og 10. bekkur í Lundarskóla. Nemendur eiga að vera mættir í
móttökuskólana kl. 8:45 og dagskrá hefst kl. 9:00.
Lesa meira
13.11.2014
Myndir frá árshátíð 2014 eru komnar inn í tengilinn "MYNDIR" hér fyrir ofan.
Lesa meira
11.11.2014
Andri Snær Magnason rithöfundur kemur til 4. bekkjar í heimsókn þriðjudaginn 11. nóvember 2014. Höfundurinn ætlar að
ræða við nemendur og skoða afrakstur þeirra af vinnu með efni bókarinnar Sagan af bláa hnettinum. Nemendur hafa unnið ýmis verkefni tengd sögunni út frá söguramma sem er samþætting nokkurra námsgreina við
söguþráð bókarinnar. Bergþóra aðstoðarskólastjóri gerði sögurammann árið 1999 sem gefinn var út
af Námsgagnastofnun. Afrakstur vinnu nemenda er að finna í stofum 209 og 210 en þau munu einnig stíga á svið á árshátíðinni
og leika atriði úr sögunni. Andri Snær mun einnig líta við hjá 6. bekk.
Myndir af nokkrum verkefnum
Myndir frá heimsókn höfundarins í 4. og 6. bekk
Lesa meira
14.11.2014
Ævar vísindamaður mun heimsækja 6. og 7. bekk föstudaginn 14. nóvember 2014.
Hann mun lesa upp úr bók sinni "Þín eigin þjóðsaga" sem er ævintýrabók sem kynnir magnaðan heim íslensku
þjóðsagnanna fyrir börnum á nýjan hátt, en lesandinn ræður ferðinni sjálfur með því að fletta fram og til baka
í bókinni. Í bókinni eru yfir 50 mismunandi endar - sumir góðir, aðrir slæmir - allt eftir því hvað lesandinn
ákveður að gera. Þetta er bók sem er eins og tölvuleikur.
Lesa meira