15.09.2014
Síðari hluti foreldranámskeiðanna 1 - 5 - 8 halda áfram þessa viku sem hér segir:
Mánudagur 15. september kl. 16:30 - 17:30 - Foreldrar nemenda í 8. KI
Þriðjudagur 16. september kl. 16:30 - 17:30 - Foreldrar nemenda í 1. bekk
Miðvikudagur 17. september kl. 16:30 - 17:30 - Foreldrar nemenda í 5. bekk
Nánar auglýst í netpósti til foreldra í þessum árgöngum.
Stella R. Gústafsdóttir deildarstjóri
Lesa meira
16.09.2014
Þann 16. september 2010, á 70 ára afmæli Ómars Ragnarssonar, var ákveðið að sá dagur yrði upp frá því
tileinkaður íslenskri náttúru. Felst í þessu viðurkenning á fram- lagi Ómars til náttúruverndar og almenningsfræðslu um
mikilvægi íslenskrar náttúru sem og allra þeirra sem lagt hafa sitt af mörkum til að fræða um íslenska náttúru.
Markmiðið með degi íslenskrar náttúru er að beina sjónum landsmanna að hinni ein- stöku náttúru landsins, gögnum hennar og
gæðum. Sótt af vef Námsgagnastofnunar http://vefir.nams.is/dagsins/dagur_isl_natturu/index.html
Lesa meira
09.09.2014
Leitin að Grenndargralinu hefst 12. september
Að venju er Leitin í boði fyrir nemendur á unglingastigi í grunnskólum Akureyrar. Í ár er Leitin valgrein og er það í annað
skipti frá því að fyrsta Leitin fór fram haustið 2008. Þrátt fyrir nýtt fyrirkomulag er Leitin að Grenndargralinu í boði fyrir
alla nemendur í 8.-10. bekk í grunnskólum Akureyrar, óháð því hvort þeir völdu hana sem valgrein eða ekki. Allt sem þarf
að gera er að hefja leik þegar fyrsta þraut fer í loftið, fara eftir fyrirmælum, leysa þrautina og skila lausnum til umsjónarmanns með
tölvupósti. Fyrir réttar lausnir sendir umsjónarmaður bókstaf til baka sem notaður verður til að mynda lykilorðið. Þetta er
endurtekið næstu níu vikurnar eða svo eða þar til kemur að lokavísbendingunni. Þá er Grenndargralið innan seilingar. Einfaldara getur
það ekki orðið.
Nánari upplýsingar um Leitina 2014 má nálgast á heimasíðu Grenndargralsins; www.grenndargral.is og á fésbókarsíðu
Grenndargralsins.
Lesa meira
08.09.2014
Við í 10.bekk erum að selja skólapeysur til söfnunar fyrir skólaferðalagið okkar.
Hver peysa kostar 6000 kr.
Mátunar/pöntunar dagar eru fimmtudaginn 11. september og föstudaginn 12. september frá kl. 15-18 báða
dagana.
Greiða þarf við pöntun, því miður er enginn posi.
Bestu kveðjur - peysunefndin J
Lesa meira
08.09.2014
Á degi læsis 8. september ætla nemendur og starfsfólk Brekkuskóla að velja með starfsfólki upplýsingaversins uppáhalds
sögupersónuna sína. Nemendur skrá á miða hvaða sögupersóna kemur fyrst upp í hugann og koma með miðana í
upplýsingaverið þar sem kjörkassar verða. Unnið verður úr gögnunum í næstu tölvutímum nemenda skólans.
Lesa meira
05.09.2014
6. bekkingar fóru í ferð með Húna í ágústmánuði. Ferðin þótti takast vel og það voru ánægð
börn sem komu heim með fiskisögur. Myndir úr ferðinni tala sínu máli.
Lesa meira
05.09.2014
Á útivistardaginn fór 1. bekkur Brekkuskóla í gönguferð í Innbæinn þar sem þau fóru á slóðir Nonna.
Þau áðu við Friðbjarnarhús en gengu síðan leið Nonna og aftur að Brekkuskóla. Hér má
finna myndir úr ferðalagi þeirra um bæinn sinn.
Lesa meira
04.09.2014
5. - 10. bekkur gekk Þingmannaleið á útivistardaginn 2. september 2014. Hér má finna myndir frá
gönguferðinni.
Þingmannaleiðin gamla liggur upp frá bænum Hróarsstöðum, yfir Vaðlaheiði og niður í Eyjafjörð og er oftast komið niður
hjá bænum Eyrarlandi.
Lagt var af stað kl. 08.30 í rútum og ekið sem leið lá að Systragili þar sem leiðin lá upp heiðina til suðurs.
Lesa meira
01.09.2014
Nokkrir nemendur Brekkuskóla tóku þátt í Akureyrarvöku með því að leika listir sínar í andyri Ketilhússins og utandyra
í Listagilinu. Hér má sjá nokkrar myndir frá viðburðinum.
Lesa meira
28.08.2014
Haustið 2013 ákvað Kelduskóli í Korpu í Reykjavík að fara í samstarf um Söguna af bláa
hnettinum eftir Andra Snæ Magnason. Á síðasta skólaári 2013 - 2014 var svo hafist handa og afraksturinn lét ekki á sér standa.
Við verkefnavinnuna nýttu kennarar söguramma eftir Bergþóru aðstoðarskólastjóra
Brekkuskóla sem kom út hjá Námsgagnastofnun árið 2001. Öll samskipti
fóru fram í gegnum eTwinning gáttina sem er hentugt fyrir þá sem hafa áhuga á samstarfi
við kennara í öðrum Evrópulöndum. Sagan af bláa hnettinum hefur komið út á pólsku, færeysku ofl. tungumálum.
Nánar um verkefnið í Kelduskóla og myndir frá verkefnavinnunni
Lesa meira