Fréttir

Myndir frá árshátíð

Myndir frá árshátíðinni eru að koma inn hægt og bítandi í tenglinum "Myndir" hér að ofan.
Lesa meira

Aðstoða yngri nemendur

Nokkrir drengir í 10. bekk völdu sér að aðstoða við kennslu í 1. bekk í aðdraganda árshátíðar. Þeim tókst verkefnið vel á hendur. Þessi starfskynning var kærkomin fyrir þá sem fundu sig ekki í skemmtiatriðum eða undirbúningi árshátíðar. Takk fyrir aðstoðina drengir! Sjá myndir frá kennslustund
Lesa meira

Fréttabréf

Fréttabréf Brekkuskóla er nú komið út í aðeins breyttri mynd. Helsta breytingin felur í sér dagatal mánaðarins þar sem fram kemur matseðill og helstu viðburði nóvembermánaðar. Fréttabréf skólans má nálgast hér.
Lesa meira

Lokaæfingar - generalprufur

Lokaæfingar (Generalprufur) verða deginum áður, miðvikudaginn 7. nóvember sem hér segir: 08:20    3. bekkur 08:40    2. bekkur 09:00    1. bekkur 09:20    7. - 8. bekkur 10:00    5. bekkur 10:30    10. bekkur 11:40     4. bekkur 12:30    9. bekkur Foreldrar sem alls ekki sjá sér fært að mæta á árshátíðardaginn er velkomið að koma og horfa á lokaæfingur þennan dag. Sjáumst í skólanum! Nemendur og starfsfólk Brekkuskóla
Lesa meira

Foreldrastarf

Í samráði við foreldrafélag skólans er skipulag foreldrastarfs í Brekkuskóla er með þeim hætti að mælst er til að hver árgangur standi fyrir þremur uppákomum yfir veturinn. Foreldrar skiptu sér á haustdögum í þrjá hópa og hver hópur sér um eina uppákomu fyrir allan árganginn. Viðmiðið er að fyrsta uppákoman sé í október/nóvember, næsta uppákoma sé í janúar/febrúar og sú síðasta í mars/apríl.  Í hverjum hópi er eru foreldrar eins barns ábyrgir fyrir að kalla hópinn saman og eru þeir gulmerktir í skjalinu hér að neðan. Að öðru leyti bera foreldrar jafna ábyrgð á framkvæmd atburðanna. Ef sá sem á að kalla hópinn saman gleymir sér bera hinir í hópnum ábyrgð á að minna hann á eða boða til fundar. Nú er fyrsta tímabil foreldrastarfs hálfnað. Nálgast má lista yfir foreldrahópana þrjá í hverjum árgangi hér.
Lesa meira

Árshátíð Brekkuskóla

Árshátíð Brekkuskóla verður fimmtudaginn 8. nóvember næstkomandi og verður hún með hefðbundnu sniði. Hér nálgast þú DAGSKRÁ Sýningar og ýmsar uppákomur verða víðs vegar um skólann. Hin vinsæla “ævintýraveröld” með hlutaveltu, tívolíþrautum, draugahúsi, spákonu, andlitsmálun, bíó o.fl. verður á sínum stað. Að venju er það 6. bekkur sem sér um ævintýraveröldina þar sem safna fyrir ferð að Reykjum á næsta skólaári.
Lesa meira

Hrekkjavökuball

Auglýsing frá 10. bekk Hrekkjavökuball verður miðvikudaginn 24. október kl. 18:30-21:00 í Brekkuskóla fyrir 5. - 7. bekk. Dans, leikir og verðlaun fyrir flottasta búninginn. Aðgangseyrir er 500 kr. Popp og Svali fylgja aðgangseyri. 10.bekkur
Lesa meira

Hrekkjavökuball

Auglýsing frá 10. bekk Hrekkjavökuball verður þriðjudaginn 23. október kl. 16-18 í Brekkuskóla. Dans, leikir og verðlaun fyrir flottasta búninginn. Aðgangseyrir er 500 kr. Popp og Svali fylgja aðgangseyri. (Miði var sendur heim með nemendum sl. föstudag) 10.bekkur
Lesa meira

Metið val 8. - 10. bekkur

Þeir nemendur í 8. - 10. bekk sem fá þátttöku í félagsstarfi eða sérskólanámi viðurkennda í stað valgreinar (eru með "metið val" á stundaskrá), þurfa að skila inn staðfestingu þess efnis frá forráðamanni og fulltrúa félags eða sérskóla.
Lesa meira

Deiliskipulag við Brekkuskóla

Frá foreldrafélaginu. Fundur verður haldinn um deiliskipulag á svæðinu við Brekkuskóla mánudaginn 22. okt. kl 20:00 í Brekkuskóla. Fundarefni eru tillaga skipulagsdeildar og tillagan "börn og bílastæði" frá  Arnari Má Arngrímsyni og Pétri Halldórsyni sem sjá má í Akureyri vikublað. Semja texta til að senda inn sem athugunasemd við það  deiliskipulag sem nú er í umsögn. En skila þarf umsögnum fyrir þann 24. okt. Við hvetjum alla foreldra sem þetta varðar og vilja hag  barna sinna sem mestan til að mæta http://www.akureyrivikublad.is/lesa/2.arg/40tbl_2argangur_Akureyri-vikublad.pdf http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Brekkuskoli_sept2012/Brekkusk_uppd.pdf http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Brekkuskoli_sept2012/Brekkusk_greinarg.pdf Kveðja  Jóhann Gunnarsson formaður foreldrafélags Brekkuskóla
Lesa meira