Fréttir

Working together - Comenius

Comeniusarverkefnið okkar þetta skólaárið hefur fengið lógó sem hér birtist. Lógóið er búið til af nemendum í samstarfsskólanum í Izmir í Tyrklandi. Einnig hefur verið sett upp vefsíða fyrir verkefnið þar sem upplýsingar um verkefnið og verk nemenda munu birtast. Vefurinn er hér, en einnig hér neðar á forsíðu vefsíðu Brekkuskóla.
Lesa meira

Gönguátakið - niðurstaða

Brekkuskóli tók þátt í verkefninu "Göngum í skólann" að venju, en þetta er í sjötta sinn sem verkefnið er haldið. Það voru 7. EJ og 6. ÞG sem stóðu sig best þetta skólaárið, en 6. ÞG vann einnig í fyrra. Þau fá að launum gullskóna góðu til varðveislu og deila bekkirnir með sér vörslunni. Þau fengu einnig sippuband, snú-snú band og bolta til afnota í frímínútum, en verðlaunin voru gefin af samstarfshópnum um Göngum í skólann. Nemendum og starfsfólki eru færðar kærar þakkir fyrir þátttökuna og góðan árangur. Öll erum við síðan hvött til að taka þátt í næsta átaksverkefni sem hefst 6. febrúar og nefnist "Lífshlaupið". Nánar um verkefnið á www.gongumiskolann.is Bekkur Gangandi/Hjólandi Akandi 2. bekkur 93% 7% 4. bekkur 92% 8% 5. bekkur 95% 5% 6. bekkur 98% 2% 7. bekkur 98% 2% 8. bekkur 89% 11% 10. bekkur 80% 20%  Meðalt. 92% 7,9%
Lesa meira

Morgunmóttaka hjá 5. bekk

Morgunmóttaka hjá 5. bekk verður þriðjudaginn 4.desember kl. 08:00 - 09:00. Brauðbollur og kaffi selt í matsal samkvæmt venju. Sjáumst í skólanum!
Lesa meira

Árshátiðarball

Nú er komið að árshátiðarballi Brekkuskóla sem allir hafa beðið eftir. Ballið byrjar kl 20.30 og stendur til miðnættis. Ballið er fyrir 8.-10.bekk en 7. bekkingar Brekkuskóla eru einnig velkomnir. Hinn geysivinsæli Jón Jónsson spilar ásamt DJ Bernódusi Óla. Aðgangseyrir er 1000 kr. Sjáumst! 10. bekkingar Brekkuskóla
Lesa meira

Óveður - er skóli?

Ef veður eru válynd er reglan sú að  foreldrar meta hvort þeir treysta börnunum í eða úr skóla. Starfsfólk er til taks í skólanum, en skóla er ekki aflýst nema í allra verstu veðrum. Þegar svo er þá er það gert með auglýsingu í útvarpi fyrir alla grunnskóla Akureyrarbæjar. Ef foreldrar meta það svo að þeir treysti ekki barni sínu í skólann þá eru þeir beðnir um að tilkynna það í síma 462-2525 eða með tölvupósti frá foreldri á brekkuskoli@akureyri.is  og þá er leyfi skráð á barnið. Nánar hér
Lesa meira

Skáld í heimsókn

Brynhildur Þórarinsdóttir kom í síðast liðinni viku og las fyrir 1. - 3. bekk úr bók sinni  Blávatnsormurinn sem er á metsölulista Eymundsson um þessar mundir. Gunnar Helgason kemur í heimsókn til 4. og 5. bekkja í Brekkuskóla 21. nóvember kl. 10:40 - 11:40 og les upp úr sögunni  Aukaspyrna á Akureyri sem einnig er á lista yfir söluhæstu bækur um þessar mundir. Bókin er æsispennandi saga sem stelpur og strákar um allt land hafa beðið óþreyjufull eftir síðan þau lögðu frá sér Víti í Vestmannaeyjum. Frá upplestrinum. Þorgrímur Þráinsson kemur í heimsókn til okkar 22. nóvember næstkomandi og mun lesa upp úr verkum sínum . Nýjasta bók Þorgríms er "Krakkinn sem hvarf" . Frá upplestrinum. Hann hittir nemendur sem hér segir: kl. 08:00 - 9:20 10. SGP í stofu 316 kl. 09:40 - 11:00 10. SÁ í stofu 316 kl. 11:20 - 12:00 4. og 7. bekkir í stofu 202-203 kl. 13:10 - 13:50 5. - 6. bekkur á sal
Lesa meira

Góð gjöf

Í dag kom fulltrúi frá foreldrafélagi Brekkuskóla og afhenti nemendum örbylgjuofn og samlokugrill að gjöf. Tækin verða staðsett í sjoppu skólans sem 10. bekkur rekur ár hvert. "Vinum Brekkuskóla" sem er heiti á sjóði foreldrafélags skólans og styrktur af foreldrum eru færðar bestu þakkir fyrir.
Lesa meira

Vann píanókeppni

Helgina 10. - 11. nóvember 2012 fór fram píanókeppni Epta í Salnum í Kópavogi, en Epta eru samtök evrópskra píanókennara. Keppt varr í þremur flokkum: 1. flokkur 14 ára og yngri, 2. flokkur 18 ára og yngi og 3. flokki 25. ára og yngri. Fulltrúi Tónlistarskólans á Akureyri var hinn 14 ára gamli Alexander Smári Kristjánsson Edelstein 9. SS Brekkuskólasem keppti í fyrsta flokki en kennari hans er Þórarinn Stefánsson sem er foreldri hér við skólann. Skemmst er frá því að segja að Alexander Smári sigraði í sínum flokki. Starfsfólk og nemendur Brekkuskóla óskar Alexander og Þórarni innilega til hamingju með frábæran árangur.
Lesa meira

Dagur íslenskrar tungu

Föstudagurinn 16. nóvember er tileinkaður íslenskri tungu. Að tillögu menntamálaráðherra ákvað ríkisstjórn Íslands, haustið 1995, að 16. nóvember ár hvert, sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, yrði dagur íslenskrar tungu. Í framhaldi af því hefur menntamála- og menningarmálaráðuneytið árlega beitt sér fyrir sérstöku átaki í þágu íslensks máls og helgað þennan dag rækt við það. Með því móti beinist athygli þjóðarinnar að stöðu tungunnar, gildi hennar fyrir þjóðarvitund og alla menningu.
Lesa meira

Rafrænt nám í Brekkuskóla

Í Brekkuskóla er unnið þróunarverkefni sem ber yfirskriftina "Rafrænt nám í Brekkuskóla". Það gengur út á það að þróa aðferðir til að auka fjölbreytni í kennslu með aðstoð tölvu- og upplýsingatækni. Meginmarkmið með verkefninu er m.a.: - að efla sjálfstæði nemenda í námi - að auka gæði og fjölbreytni í kennsluaðferðum - að fækka niðurfelldum kennslustundum nemenda - að auka þekkingu og efla endurmenntun kennara á sviði upplýsinga- og samskiptatækni - að nemendur læri að nýta tölvu- og upplýsingatækni í námi á hagnýtan hátt í einstaklingsmiðuðu námi - að bæta líðan og  áhuga nemenda  í námi - að meta allt vinnuframlag nemenda óháð staðsetningu og taka tillit til þess í heildarskipulagi námsins - að skipuleggja hluta náms nemenda sem rafrænt nám með aðgangi að tölvuveri og leiðbeinandi aðstoð frá kennara
Lesa meira