Helga María 1. sæti

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekkjum grunnskólanna á Akureyri fór fram í Menntaskólunum á Akureyri (MA) þann 6. mars 2013. Aðallesarar Brekkuskóla voru þær Helga María Guðmundsdóttir 7. EJ og Sólrún Svava Kjartansdóttir 7. HS. Það er skemmst frá því að segja að Helga María var valin af dómnefnd í 1. sæti keppninnar. Keppendur allir stóðu sig með stakri prýði og eins og Karl Frímannsson fræðslustjóri orðaði það "Þið eruð öll sigurvegarar, þið stóðuð ykkur svo vel" Ingibjörg Einarsdóttir sagði í ávarpi sínu að undirbúningur þessarar keppni skipti miklu máli. Hún sagðist vita að þar liggi mikil vinna að baki og þakkaði þeim fjölmörgu nemendum, starfsfólki skólanna og foreldrum fyrir samstarfið og þátttökuna við undirbúning keppninnar. Í upphafi og í hléi spiluðu nemendur úr 7. bekk sem stunda nám í Tónlistarskóla Akureyrar. Í þeirra hópi voru fimm fulltrúar frá Brekkuskóla sem við erum afskaplega stolt af. Þar af voru báðir fulltrúar skólans í upplestrarkeppninni. Auk þeirra voru það Arndís Atladóttir á píanó, Heba Karitas Ásgrímsdóttir fiðlu og Edda Kristín Bergþórsdóttir fiðla. Stjórnendur og starfsfólk Brekkuskóla óskar Helgu Maríu og 7. bekk til hamingju með árangurinn! Nánar um keppnina á landsvísu hér og myndir frá lokahátíðinni á Akureyri hér