Fréttir

Árshátíðarskipulag

Hér er heildarskipulag fyrir árshátíð Brekkuskóla 10. nóvember 2016.Sýningar og ýmsar uppákomur verða víðs vegar um skólann. Hin vinsæla “ævintýraveröld” með hlutaveltu, tívolíþrautum, draugahúsi, spákonu, andlitsmálun, bíó o.fl. verður á sínum stað. Að venju er það 6. bekkur sem sér um ævintýraveröldina sem safnar fyrir ferð að Reykjum á næsta skólaári.
Lesa meira

Umferðaröryggi

Nú þegar farið er að skyggja er ástæða til að gæta að því að allur öryggisbúnaður á reiðhjólum sé í lagi, sérstaklega ljós og glitaugu.  Einnig er ástæða til að minna á notkun endurskinsmerkja og að börnin gæti varúðar þegar þau fara yfir götur á leið sinni í skólann.  Hér má sjá gott myndband um endurskinsmerkjatilraun. https://www.youtube.com/watch?v=tIq7VBCoMsw
Lesa meira

Vel heppnað skólaþing

Þriðjudaginn 11. október var haldið um 45 manna skólaþing í Brekkuskóla um samskipti og líðan. Á þinginu völdu þingmenn eina af fjórum stöðvum þar sem ákveðið efni var til umræðu. Þingmenn létu hugmyndir sínar í ljós á miðum sem voru hengdir upp og flokkaðir eftir efni. Í gegnum þessa vinnu sköpuðust góðar umræður í hópunum. Í lokin voru hugmyndir hvers hóps kynntar. Útkoman var hugmyndabanki sem styrkir enn frekar undirstöður skólastarfsins og nýtist til að gera góðan skóla enn betri. Hugmyndabankinn verður nýttur við endurskoðun á skólanámskránni. Það var mat þeirra sem sátu þingið að vel hefði tekist til. Okkur langar að þakka öllum sem tóku þátt í þinginu kærlega fyrir þeirra framlag. Hér má nálgast nokkrar myndir frá þinginu.     
Lesa meira

Aðalfundur foreldrafélags Brekkuskóla

Aðalfundur foreldrafélags Brekkuskóla -fræðsla-vöfflukaffi Aðalfundur foreldrafélagsins verður haldinn þriðjudagskvöldið 11. október í hátíðarsal Brekkuskóla klukkan 20.  Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa munum við fá góða gesti á fundinn. Kjartan Ólafsson, lektor við HA flytur erindið: „Snjöll tæki í ósnjöllum höndum?"  og Helena Sigurðardóttir og Margrét Þóra Einarsdóttir, kennarar við Brekkuskóla flytja erindið: „Að nýta tækni til náms“ en þær eru frumkvöðlar á þessu sviði í grunnskólunum og hafa víða kynnt sína starfshætti. Undir liðnum: Önnur mál verður rætt sérstaklega um umferðaröryggi við Brekkuskóla  Í Brekkuskóla starfar mjög öflugur foreldrahópur sem er annt um velferð og nám nemenda í skólanum. Mæting á aðalfundi foreldrafélagsins er nánast skylda og viljum við ítreka að ætlast er til að öll heimili sendi frá sér einn fulltrúa á fundinn.    Stjórn foreldrafélagsins er ekki fullmönnuð og vel er tekið á móti öllum þeim sem hafa samband við stjórnina ( Bergljót: 892-2737) og vilja taka þátt í starfinu í vetur. Nemendur í 7. bekk standa nú fyrir fjáröflun vegna námsferðar í Reykjaskóla og munu framreiða ljúffengar vöfflur og kaffi gegn vægu gjaldi (500 kr.) Hlökkum til að sjá ykkur  
Lesa meira

Skólaþing

Þriðjudaginn 11. október kl. 9-11:30 er fyrirhugað að halda skólaþing í Brekkuskóla um samskipti og líðan. Markmiðið með skólaþinginu er að efla nemendalýðræði og samvinnu allra sem að skólasamfélagi Brekkuskóla koma, að gera góðan skóla enn betri.  Á skólaþingi sitja fulltrúar starfsfólks, nemenda, foreldra og Rósenborgar.  Það verður unnið með fjórar grunnspurningar, hver í tveimur liðum.  Niðurstöður verða teknar saman í lokin og nýttar til að bæta skólann og líðan nemenda og starfsfólks. Við hvetjum áhugasama foreldra til að skrá sig með því að hafa samband við Sigríði Magnúsdóttur, siggamagg@akmennt.is eða Jóhönnu Maríu Agnarsdóttur, johannamaria@akmennt.is
Lesa meira

Foreldrarölt

FORELDRARÖLT Opinn fundur um verkefnið Foreldrarölt á Akureyri verður í sal Brekkuskóla 22. september klukkan 20:00. Verkefnið er samstarfsverkefni Samtaka - Samtök foreldrafélaga, Rósenborgar, Skóladeildar og Lögreglunnar.Á fundinum munu einstaklingar frá öllum þessum aðilum velta fyrir sér þörfnni á verkefninu, fyrkomulagi o.s.frv. Fundurinn er öllum opinn. Samtaka - Samtök foreldrafélaga á Akureyri    Skóladeild Akureyrar
Lesa meira

Lesferill

Nú í haust mun Brekkuskóli taka í notkun nýtt matstæki sem heitir Lesferill og er gefið út af Menntamálastofnun. Þar inni eru og verða ýmsar kannanir sem meta læsi.  Kannanir sem mæla lesfimi eru þær fyrstu sem  teknar verða í notkun og mæla leshraða nemenda.  Um er að ræða staðlaðar kannanir sem taka mið af aldri.  Þær verða lagðar fyrir alla nemendur í 2. - 10. bekk nú í haust og í 1.  - 10. bekk eftir áramót.     
Lesa meira

Kjólagjörningur í Gilinu

  280 nemendur í Brekkuskóla tóku þátt í kjólagjörningi Þóru Karlsdóttur myndlistarmanns.   Þóra var með kjólagjörning í 280 daga í fyrra, var í nýjum kjól á hverjum degi í 9 mánuði.  Þann 10. september ætlar hún  að sýna afrakstur gjörningsins í Listasafninu og þurfti að flytja kjólana 280 frá vinnustofunni sinni niður Gilið í Ketilhúsið þar sem sýningin verður sett upp. Þessi kjólaflutningur var tekinn upp og verður hluti af sýningunni.  Gjörningurinn tókst með eindæmum vel og ekki spillti veðrið fyrir, sól og blíða lék við alla í Gilinu.      
Lesa meira

Fréttabréf ágúst - september 2016

Nú er komið út fyrsta Fréttabréf vetrarins og má lesa það hér.
Lesa meira

Skólabíll

Í vetur fer skólabíll úr Innbæ í Brekkuskóla: 07:35 Hafnarstræti / Keiluhöll07:36 Aðalstræti / Brynja07:38 Aðalstræti / Duggufjara07:41 Aðalstræti / Minjasafn (SVA)          Aðalstræti / Naustafjara07:50 Laugargata Brekkuskóli ATH! Ekki verður ferð úr skólanum að afloknum skóladegi. 
Lesa meira