23.09.2013
Í Brekkuskóla fór fram sérstök skráning á því hve margir nemendur komu gangandi/hjólandi o.s.frv. í skólann vikuna 9.
- 13. september. Það var gert til að leggja sérstaka áherslu á mikilvægi hreyfingar og örugga umferð við skólann. Sá bekkur sem
hlutfallslega kom oftast gangandi/hjólandi o.s.frv. í skólann fékk gullskóna sem viðurkenningu. Í fyrra skiptu tveir bekkir með sér
viðurkenningunni og fengu sippubönd, bolta og snú snú bönd að launum. Í ár varð einn bekkur, 6. ÁÁ, hlutskarpastur þar sem
nemendur mættu 100% gangandi, hjólandi eða á hjólaleiktæki í skólann. Langflestir koma gangandi í skólann eða að
meðaltali um 88% nemenda. Verkefnið er unnið í tengslum við átakið "Göngum í skólann" www.gongumiskolann.is sjá einnig frétt frá okkur á þeirri
vefsíðu.
Umsjón með keppninni höfðu íþróttakennarar skólans í samráði við skólastjórnendur.
Lesa meira
17.09.2013
Félagsmiðstöðin Trója er staðsett í Rósenborg og er sameiginleg félagsmiðstöð fyrir Brekkuskóla, Lundarskóla,
Naustaskóla og Oddeyrarskóla.
Félagsmiðstöðin býður upp á opið starf þar sem unglingarnir sjálfir undir handleiðslu starfsmanna skipuleggja og sjá um
viðburði. Einnig er í boði öflugt klúbbastarf. Þeir klúbbar sem eru í boði í vetur eru:
Lesa meira
09.09.2013
Í Brekkuskóla fer fram sérstök skráning á því hve margir nemendur koma gangandi/hjólandi o.s.frv. í skólann vikuna 9. - 13.
september. Það er gert til að leggja sérstaka áherslu á mikilvægi hreyfingar og örugga umferð við skólann. Sá bekkur sem
hlutfallslega kemur oftast gangandi/hjólandi o.s.frv. í skólann fær viðurkenningu. Umsjón með keppninni hafa íþróttakennarar
skólans.
Lesa meira
06.09.2013
Af vef Háskólans á Akureyri:
Alþjóðadagur læsis er 8. september. Frá árinu 1965 hafa Sameinuðu þjóðirnar helgað 8. september málefnum læsis og í
ár taka Íslendingar í fjórða skiptið þátt í þessum alþjóðlega degi.
Læsi verður gert hærra undir höfði þennan dag og eru það Miðstöð skólaþróunar við HA, Bókasafn HA,
Amtsbókasafnið og Akureyrarstofa sem starfa saman að undirbúningi læsisviðburða á Akureyri.
Í meðfylgjandi skjali er hægt að sjá hugmyndir að
læsisviðburðum í tengslum við alþjóðadag læsis.
Lesa meira
29.08.2013
Verkefninu Göngum í skólann verður hleypt af stokkunum í sjöunda sinn á útivistardegi Brekkuskóla, miðvikudaginn 4.
september og lýkur svo formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 2. október.
Í Brekkuskóla fer fram sérstök skráning á því hve margir nemendur koma gangandi/hjólandi o.s.frv. í skólann vikuna 9. - 13.
september. Það er gert til að leggja sérstaka áherslu á mikilvægi hreyfingar og örugga umferð við skólann. Sá bekkur sem
hlutfallslega kemur oftast gangandi/hjólandi o.s.frv. í skólann fær viðurkenningu. Umsjón með keppninni hafa íþróttakennarar
skólans.
Markmið verkefnisins eru að hvetja til aukinnar
hreyfingar með því að auka færni barna til að ferðast með virkum og öruggum hætti í skólann. Á vef Samgöngustofu má lesa frétt um mikilvægi þess að kenna börnum á umferðina, en þar eru meðal annars talin upp 10
góð ráð sem mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn hafi í huga og fræði börnin sín um.
Lesa meira
29.08.2013
Brekkuskóli hefur í samstarfi við VMA skipulagt valgreinar fyrir 8. - 10. bekk sem kenndar eru ýmist í VMA eða í Brekkuskóla. Í gær
lögðu 12 grunnskólanemendur leið sína í VMA til að nema trésmíði og í dag hófu 16 nemendur nám í
raungreinavali í raungreinastofu Brekkuskóla. Hér má sjá nokkrar myndir úr fyrstu tímum í
þessari frumraun.
Lesa meira
26.08.2013
Skólabíll - Innbær
Í skóla:
07:35 Hafnarstræti / Keiluhöll
07:36 Aðalstræti / Brynja
07:38 Aðalstræti / Duggufjara
07:41 Aðalstræti / Minjasafn (SVA)
Aðalstræti / Naustafjara
07:50 Laugargata Brekkuskóli
Úr skóla:
13:30 frá Laugargötu Brekkuskóla
Lesa meira
21.08.2013
Skólaþing epli.is verður í Brekkuskóla fimmtudaginn 22. ágúst kl. 13:00 - 16:00. Þingið ber yfirskriftina
„Meira í dag en í gær“ að þessu sinni og verður í fyrsta sinn haldin á tveim stöðum á landinu. Þingið verður
annarsvegar í Salaskóla í Kópavogi en kennarar þar hafa verið að vinna áhugavert þróunarverkefni með iPad og svo í
Brekkuskóla á Akureyri þar sem áhugasamur kennarahópur hefur verið að nýta iPad í kennslu.
21. ágúst kl. 13:00 Salaskóli Kópavogi
22. ágúst kl. 13:00 Brekkuskóli Akureyri
Dagskráin er tvískipt líkt og áður en fyrst kemur heimsþekktur fyrirlesari sem ætlar að segja frá þeim
áskorunum sem hann hefur mætt í starfi sínu sem kennari í fátækrahverfum Chennai borgar í Indlandi. Eftir hlé verða svo margvislegar
vinnustofur. Nánari dagskrá verður auglýst síðar á vef skólaþingsins.
Þátttaka á skólaþinginu er endurgjaldslaus fyrir starfsmenn skóla og menntastofnanna en það þarf að
skrá sig til þátttöku á vefsíðu epli.is
Lesa meira
28.06.2013
Fimmtudaginn 27. júní boðaði skólanefnd Akureyrarbæjar til samkomu í Menningarhúsinu Hofi – Hömrum, þar sem nemendum, kennurum og
starfsmönnum við skóla Akureyrarbæjar var veitt viðurkenning fyrir að hafa skarað fram úr í starfi. Það er skemmst frá
því að segja að Hafdís Haukdal nemandi í 6. bekk Brekkuskóla 2012 - 2013 hlaut viðurkenningu fyrir dugnað og framfarir í námi
sínu.
Hafdís var í hópi fjölda einstaklinga sem hlaut viðurkenningu en nöfn þeirra allra verða birt á vef skóladeildar.
Heiðursverðalaun hlaut Birgir Helgason sem var lengi vel kennari við Barnaskóla Akureyrar og sungu viðstaddir viðkenningarsamkonuna í Hofi
skólalag Barnaskóla Akureyrar.
Lesa meira
21.06.2013
Brekkuskóli tók þátt í Unicef söfnun á vordögum með því að taka þátt í fjölbreyttri hreyfingu á
16 stöðvum sem íþróttakennarar settu upp á skólalóðinni. Nemendur létu heita á sig og söfnuðu alls 405.894 kr. sem
lagðar voru inn á reikning Unicef. Þá er ótalin sú upphæð sem lögð var beint inn á reikninginn hjá Unicef og við eigum eftir
að fá nánari upplýsingar um.
Við þökkum nemendum, foreldrum og forráðamönnum kærlega fyrir að leggja góðu málefni lið og stuðla að samkennd meðal
nemenda um stríðshrjáð börn. Þeir sem vilja leggja málefninu frekari lið geta lagt inn á reikning Unicef kt.481203-2950 reikn. 701-26-102010.
Munið að setja "Brekkuskóli" sem skýringu á greiðslunni.
Lesa meira