02.12.2008
Í gær 1. desember var 90 ára afmæli fullveldisins Ísland. Af því tilefni var stefnumót allra barna í 1. og 2. bekk á Akureyri
í kirkjutröppunum þar sem þau sungu lög og ljóð eftir Matthías Jochumson og fleiri þekkt skáld okkar Akureyringa.
Greinilegt var að nemendur höfðu æft sig vel heima og í skólanum því athöfnin þótti takast mjög vel.
Nemendur og starfsfólk Brekkuskóla óskar öllum ánægjulegrar aðventuhátíðar.
Lesa meira
24.11.2008
Sótt af vef Óðins http://www.odinn.is/ 24.okt.
´08
Óðinn eignaðist í dag langþráðan Íslandsmeistara í sundi, þann fyrsta í fullorðinsflokki til fjölda
ára. Þar var á ferð Bryndís Rún Hansen í 50 m flugsundi og í leiðinni setti hún aldursflokkamet stúlkna og Akureyrarmet
stúlkna og kvenna.
Raunar tvíbætti Bryndís Akureyrarmetið því það féll fyrst í undanrásum í morgun. Í úrslitasundinu lagði
hún að velli Ólynpíufarana Ragnheiði Ragnarsdóttur og Sarah Blake Bateman. Ekki amalegur árangur.
Til hamingju Bryndís Rún með frábæran árangur!
Nemendur og starfsfólk Brekkuskóla
Lesa meira
18.11.2008
Að beiðni Ágústs Jakobssonar, skólastjóra Naustaskóla, sendum við neðangreint skeyti á foreldrahópinn. Pósturinn
er sérstaklega ætlaður þeim sem búsettir eru í Naustahverfi og öðrum sem hugleiða að skrá börn sín í
Naustaskóla.
Kæru foreldrar
Vakin er athygli á að búið er að opna heimasíðuna www.naustaskoli.is. Þar er að finna nokkuð af upplýsingum um skólann,
húsnæðið og þann undirbúning sem fram hefur farið, en í framhaldinu munu svo upplýsingar um stefnu og starfshætti skólans birtast
á síðunni. Þar sem formleg skráning í skóla á Akureyri fer ekki fram fyrr en eftir áramót, en engu að síður er
orðið knýjandi að vita hve margir hugsa sér að skrá börn sín í skólann, bið ég ykkur um að kíkja á
heimasíðuna og smella þar á hnapp sem merktur er "Forskráning í Naustaskóla". Einnig er hægt að fara beint á slóðina hér
til að opna skráningarsíðuna. Nánari upplýsingar er að finna á skráningarsíðunni og á heimasíðu
skólans. Einnig er velkomið að hafa samband við undirritaðan ef spurningar vakna.
Bestu kveðjur,
Ágúst Jakobsson
skólastjóri Naustaskóla
agust@akureyri.is
s: 460-1454 / 847-8812
Lesa meira
10.11.2008
/*
/*]]>*/
Eins og þið hafið væntanlega orðið vör við er samræmd dagskrá fyrir alla nemendur í 9. bekk á landinu í tilefni
Forvarnardagsins. Hjá okkur fór þetta þannig fram að árgangurinn kom saman á sal. Fyrstur á dagskrá var Örlygur Þór
Helgason, framkvæmdastjóri KA, en hann talaði við nemendur um mikilvægi íþrótta og tómstundastarfs. Að því búnu
útskýrði hann net ratleik fyrir krökkunum og dreifði til þeirra merktum pennum sem eru gjöf Forvarnardagsins.
Því næst var horft á myndband þar sem m.a. fjallað var um niðurstöður af vinnu þessa dags á síðasta ári og þau
atriði dregin fram sem hafa ber í huga til að forðast vímuefni.
Loks var komið að því að nemendur unnu verkefni í hópavinnu. Niðurstöður þeirrar vinnu er að finna hér að neðan.
Verkefnin eru þrenns konar; 1) samvera, 2) íþrótta- og æskulýðsstarf og 3) hvert ár skiptir máli.
Niðurstöður nemenda í 9. bekk í Brekkuskóla eru eftirfarandi. Bekkirnir eru þrír og eitt svar frá hverjum bekk við hverri spurningu.
Umræðuefni: Samvera.
a) Hvað mynduð þið vilja gera oftar með fjölskyldunni?
Spilakvöld, ferðast, kósíkvöld, ákveða t.d. eitt fjölskyldukvöld í viku, baka, útivist, versla saman, spjallkvöld.
Fara til útlanda, ferðast, spila, fá ís.
Fara til útlanda, fara í sumarbústað eða eitthvað frí. Velja einhver sérstakan dag til að hittast og spila eða horfa á mynd eða
annað (fara í ísbúðina Brynju, keilu o.fl.)
b) Af hverju ætti fjölskyldan að verja sem mestum tíma saman að þínu áliti?
Til þess að kynnast hvert öðru betur og vera náin. Styrkja tengsl og forðast fíkniefni og áfengi.
Þá byrjar maður seinna að drekka, reykja og neyta fíkniefna.
Svo að fjölskyldan verði nánari og maður verði öruggari í samfélaginu. Það hindrar fíkniefnaneyslu. Svo maður geti treyst
foreldrum sínum.
c) Hvað getið þið gert til að vera meira með fjölskyldunni?
Hætta að horfa á sitt hvort sjónvarpið og vera saman. Elda oftar saman.
Ákveða kvöld sem allir ætla að vera saman heima. Tala við foreldrana, biðja þau að kaupa eitthvað gott og hafa kósíkvöld.
Minnka tölvunotkun og borða saman á matartímum og vera meira heima. Tala meira við foreldrana og stinga uppá hlutum til að gera saman.
Steinunn Harpa Jónsdóttir námsráðgjafi
Lesa meira
10.11.2008
Frá því að ákveðið var að fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember, yrði dagur íslenskrar tungu
ár hvert hefur menntamálaráðuneytið árlega beitt sér fyrir sérstöku átaki í þágu íslensks máls
helgað þennan dag rækt við það, í góðu samstarfi við skóla, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga enda
virðist dagur íslenskrar tungu hafa náð góðri fótfestu í samfélaginu.
Dagur íslenskrar tungu ber upp á sunnudag að þessu sinni. Dagarnir í kring verða því nýttir til að hafa íslenskuna í
öndvegi. Heimasíða dags íslenskrar tungu hefur að geyma hugmyndabanka og upplýsingar um
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar sem menntamálaráðherra afhendir árlega 16.nóvember.
Lesa meira
10.11.2008
Við stejum inn myndir af helstu viðburðum skólastarfsins hér á vef skólans. Allar myndir eru undir tengli á valstikunni hér að ofan
og mun þeim fjölga smátt og smátt næstu daga. Myndir frá árshátíðarskemmtun í elstu árgöngunum
eru hér.
Brosum - það er svo miklu léttara!
Lesa meira
03.11.2008
Forvarnardagurinn er fimmtudaginn 6. nóvember. Dagskrá 9. bekkjar þennan dag færist yfir á mánudag vegna
árshátíðarvinnu nemenda. Foreldrar/forráðamenn og starfsmenn skólans eru hvattir til að helga daginn forvörnum.
Benda má á eftirfarandi niðurstöður
Unglingar sem verja í það minnsta klukkustund á dag með fjölskyldum sínum, eru síður líklegir til að hefja neyslu
fíkniefna
Ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf falla mun síður fyrir fíkniefnum
Því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau verði
fíkniefnum að bráð
Byggir á niðurstöðum íslenskra vísindamanna sem hafa um árabil rannsakað áhættuhegðun ungmenna og hafa vakið
alþjóðlega eftirtekt
Forvarnardagur 2008 verður haldinn í öllum grunnskólum landsins fimmtudaginn 6. nóvember næstkomandi. Dagurinn er
helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í
landinu.
Forvarnardagurinn er haldin að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga,
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla
Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Verkefnið er stutt af lyfjafyrirtækinu Actavis.
Íslenskar rannsóknir hafa sýnt að þeir unglingar sem verja í það minnsta klukkustund á dag með
fjölskyldum sínum, eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna. Að sama skapi sýna niðurstöður að mun ólíklegra
sé að ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf, falli fyrir fíkniefnum. Í þriðja lagi sýna
rannsóknirnar fram á að því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau
neyti síðar fíkniefna.
Niðurstöðurnar byggja á rannsóknum vísindamanna við Háskóla Íslands og Háskólann
í Reykjavík sem hafa um árabil rannsakað áhættuhegðun ungmenna og hafa þær vakið alþjóðlega eftirtekt.
Nánari upplýsingar á http://www.forvarnardagur.is/
Lesa meira
30.10.2008
Í þessari viku verður undirbúningur árshátíðar í gangi hjá 8. - 10. bekk. Unnið verður fyrir hádegi
þriðjudags til föstudags en valgreinar eftir hádegi munu halda sér. Umsjónarkennarar halda utan um bekkinn sinn og undirbúa með þeim
sýningu og dansleik fyrir föstudaginn. Foreldrasýning verður fimmtudaginn 5. nóvember kl. 17:00
Lesa meira
21.10.2008
Íþróttakennarar Brekkuskóla hafa sett saman leikjabók sem komin er í gagnið. Bókin er hugsuð fyrir starfsfólk skólans við
störf í frjálsum tíma á skólalóð til að leiðbeina börnum við leik og koma af stað leikjum. Bundnar eru vonir við að
leikjabókin verði hvatning til fjölbreyttra leikja og hreyfingar meðal nemenda skólans. Í bókinni eru 25 leikir með leiðbeiningum auk þess
sem nokkrir innileikir fá að fljóta með. Fremst í bókinni er yfirlitsmynd af skólalóðinni þar sem svæðin hafa verið merkt sem
ábending um hepplegan stað fyrir hvern leik.
Lesa meira
16.10.2008
Óformleg könnun var gerð meðal nemenda skólans á "Göngum í skólann deginum". Niðurstöður eru þær að um
61% nemenda komu í skólann með eigin vöðvaafli þ.e. gangandi eða hjólandi.
2,5% nemenda koma með strætó og ganga því hluta leiðarinnar. 13% koma með skólabíl og 18% með einkabíl. 5,5% nemenda voru
fjarverandi. Tvær bekkjardeildir tóku ekki þátt í könnuninni.
Lesa meira