27.01.2010
Árshátíð Brekkuskóla verður haldin þann 11. febrúar 2010. Settar verða upp sýningar víðs vegar um
skólann og margt annað verður til skemmtunar s.s. hlutavelta, tívolíþrautir, draugahús, spákona, andlitsmálun ofl.
Kaffihlaðborð 10. bekkja verður á tveimur stöðum í húsinu eftir kl.15:30. Á hádegissýningunum verður sjoppa 10. bekkinga opin
þar sem hægt verður að fá pylsur og drykk, súkkulaðiköku m/rjóma og kaffi ofl.
Sýningar verða sem hér segir:
1. bekkur kl.12:00 og kl.15:00
2. - 3. bekkur kl. 12:30 og kl.15:30
4. - 10. bekkur Sýningar kl.15:00, kl.16:30 og kl.18:00
Sjáumst í skólanum!
Lesa meira
12.01.2010
Þjálfun í samskiptum, tilfinningastjórn og athygli barna með ADHD
Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar og ADHD samtökin í samvinnu við Þroska- og hegðunarstöð HH bjóða börnum með ADHD að taka
þátt í námskeiði til að efla færni á ýmsum sviðum. Námskeiðið er fyrir börn fædd árið 2000 og 2001 og
eru 6 börn í hverjum hóp. Áhersla er lögð á að auka færni barna í félagslegum samskiptum, skapstillingu, sjálfsstjórn
og að bæta athyglisgetu þeirra. Hópurinn hittist tvisvar í viku 1 og 1/2 tíma í senn, í 5 vikur (10 skipti alls) með tveimur
þjálfurum.
Lesa meira
31.12.2009
Við hefjum nýtt ár með starfsdegi 4. janúar 2010 og verður Frístund lokuð fyrir hádegi þann dag. Nemendur mæta aftur í
skólann þriðjudaginn 5. janúar 2010 samkvæmt stundaskrá.
Viðtalsdagur verður miðvikudaginn 13. janúar 2010 og verða boð send foreldrum á fyrstu skóladögum á nýjum ári.
Lesa meira
28.12.2009
Myndir frá litlu jólunum hafa nú verið settar inn á vefinn okkar. Lesnar voru jólasögur, spilað á hljóðfæri og dansað
í kringum jólatré. Smellið hér og hér.
Lesa meira
09.12.2009
Þemadagar í 5. - 7. bekk ganga að óskum. Að þessu sinni er það heilbrigði og hollusta sem við beinum sjónum okkar að. Nemendur hafa
verið í leikjum úti og inni, í dansi og á skautum í morgun og virtust þau skemmta sér konunglega. Myndir frá einum danshópnum
má nálgast hér.
Lesa meira
08.12.2009
Í myndmennta vali er verið að vinna við húsaverkefni sem reynir á rýmisgreind. Þetta skemmtilega verkefni lífgar upp á
skólastarfið. Kíkið endilega á fleiri myndir hér.
Lesa meira
01.12.2009
Í Fréttabréfinu er meðal annars að finna upplýsingar um ýmis verkefni, heimsókn
ráðherra og tímasetningar á litlu jólum.
Lesa meira
29.11.2009
Grafíkmynd hefur verið spreyjuð á vegg í félagsaðstöðu nemenda. Það voru listamennirnir Hjalti í 10. SS og Ottó Jón
í 9. HDM sem undirbjuggu verkið í samvinnu við skólastjóra og gröffuðu þeir einnig myndina.
Lesa meira
25.11.2009
Miðvikudaginn 25. nóvember fór fram fræðsla um kynferðisofbeldi í 7. - 10. bekk á vegum Aflsins. Hver árgangur var eina kennslustund og var
þeim kynjaskipt í hópa. Aflið eru systursamtök Stígamóta á Akureyri.
Lesa meira
24.11.2009
Myndir eru komnar á vefinn frá Degi íslenskrar tungu 16. nóvember 2009, en menntamálaráðherra Katrín
Jakobsdóttir heimsótti okkur og kynnti sér verkefnið Orð af orði sem unnið hefur verið í vetur í 3. - 7. bekk undir leiðsögn
Guðmunds Engilbertssonar hjá Skólaþróunarsviði Háskólans á Akureyri.
Lesa meira