14.09.2009
Af vef Morgunblaðsins http://www.mbl.is/ :
Nú standa yfir árlegar ferðir með Húna II fyrir nemendur við sjötta bekk í grunnskólum Akureyrar. Myndin var tekin þegar nemendur
frá Brekkuskóla fóru í þessa fróðlegu ferð ásamt kennara sínum.
Lesa meira
07.09.2009
Viðbragðsáætlun almannavarna fyrir Brekkuskóla er komin út. Viðbragsðáætlunin segir fyrir um skipulag og stjórn aðgerða
í Brekkuskóla í samræmi við áætlun Almannavarna um viðbrögð við heimsútbreiðslu inflúensu.
Lesa meira
06.09.2009
Þriðjudaginn 8. september 2009 er dagur læsis. Þá eru kennarar, nemendur og annað starfsfólk skóla um allt land hvatt til að skipuleggja
upplestur innan sem utan kennslustofa í 10 til 15 mínútur milli kl. 11 og 11:30 og mun Brekkuskóli að sjálfsögðu vera með.
Lesa meira
04.09.2009
Samræmd leiðsagnarpróf eru framundan í vikunni 14. - 18. september 2009.
10. bekkur byrjar á mánudegi þann 14. september og fara prófin þeirra fram á sal skólans. Prófdagar hjá 4. og 7. bekk
verða fimmtudaginn 17. september og föstudaginn 18. september. Þeirra próf fara fram í heimastofum. Samræmdu prófin er nú fyrst sett upp
í september, en áður voru þau á seinni hluta vorannar hjá 10. bekk og um miðjan október hjá 4. og 7. bekk. Litið verður á
prófin sem leiðsagnarpróf um áframhaldandi nám nemandans.
Lesa meira
30.08.2009
Foreldrafulltrúar bekkja eru kjörnir á kynningarfundum að hausti sem fara fram á vegum skólans í fyrri hluta septembermánaðar ár
hvert.
Foreldrafélag Brekkuskóla gaf út í fyrsta skipti skólaárið 2008 - 2009 Handbók fyrir foreldrafulltrúa bekkja sem nú er komin út í annað sinn og má nálgast hér
á vefnum. Handbókin er nú prentuð út fyrir alla nýja foreldra í skólanum en aðrir foreldrar fengu afhenta fyrstu útgáfu
í fyrra.
Lesa meira
21.08.2009
Sóttvarnarlæknir hefur gefið út
svohljóðandi upplýsingar fyrir foreldra og forráðamenn vegna yfirvofandi inflúensufaraldurs:
Heimsfaraldur inflúensu A(H1N1)v sem ríður yfir um þessar mundir er tiltölulega vægur og skapar því ekki forsendur fyrir skorðum við
skólahaldi. Skólastarf á að geta hafist með eðlilegum hætti næstu daga og vikur þrátt fyrir heimsfaraldur inflúensunnar. En seinna
þegar faraldurinn er í hámarki getur þurft að taka afstöðu til þess hvort tilteknir skólar geti haldið áfram starfi vegna mikilla
fjarvista nemanda og/eða kennara. Skólastjórnendur vinna í samvinnu við menntamálaráðuneyti að samræmdri viðbragðsáætlun
vegna inflúensufaraldurs sem stuðlar að samræmdum aðgerðum skóla um allt land.
Lesa meira
18.08.2009
Breyting frá því Fréttabréf kom út:
Ákveðið hefur verið að nýta og uppfæra þau neyðarkort sem þegar eru til í boðuðum viðtölum.
Foreldrar í 1. bekk fylla út neyðarkort í boðuðu viðtali og skila því til ritara skólans.
Lesa meira
14.08.2009
Nýtt Fréttabréf ágústmánaðar er komið út sem hefur að geyma upplýsingar fyrir
nemendur og foreldra vegna skólabyrjunar haustið 2009.
Undirbúningur viðtala - sjá "Lesa meira" hér að neðan
Lesa meira
05.08.2009
Upplýsingar um Frístund má finna hér. Staðfesting á skráningu og innritun fer fram fimmtudaginn 13.
ágúst og föstudaginn 14. ágúst í húsnæði Frístundar í Brekkuskóla milli kl.09:00 og 14:00 báða dagana.
Mikilvægt er að gengið sé frá skráningu þessa daga.
Lesa meira
23.06.2009
Skólabyrjun skólaárið 2009 - 2010 hefst með viðtölum við nemendur og foreldra dagana 24. - 26. ágúst 2009. Boð í viðtal
verður sent út að þessu sinni í rafrænu formi í netpósti um það bil viku áður. Mat til undirbúnings viðtölunum fer
fram í námsumhverfinu Mentor á vefnum mentor.is þar sem foreldrar eru beðnir um að svara
spurningum ásamt börnum sínum af bestu sannfæringu. Opnað verður fyrir spurningarnar (matið) 14. ágúst 2009. Foreldrar
nýrra nemenda í skólanum eru beðnir um að hafa samband við ritara skólans í ágúst til að að fá sent aðgangsorð
í Mentorkerfið, hafi þeir ekki þegar fengið aðgang.
Vakin er athygli á að skóladagatal næsta skólaárs er
komið á vefinn og einnig námsgagnalistar (innkaupalistar)til að hafa til hliðsjónar við undirbúning
skólaársins.
Lesa meira