Foreldrafulltrúar bekkja - önnur útgáfa handbókar komin á vefinn
30.08.2009
Foreldrafulltrúar bekkja eru kjörnir á kynningarfundum að hausti sem fara fram á vegum skólans í fyrri hluta septembermánaðar ár
hvert.
Foreldrafélag Brekkuskóla gaf út í fyrsta skipti skólaárið 2008 - 2009 Handbók fyrir foreldrafulltrúa bekkja sem nú er komin út í annað sinn og má nálgast hér
á vefnum. Handbókin er nú prentuð út fyrir alla nýja foreldra í skólanum en aðrir foreldrar fengu afhenta fyrstu útgáfu
í fyrra.