Fréttir

Myndir frá miðstigsballi

10. bekkur hélt ball nú í vor fyrir miðstigið eða 5. - 7. bekk. Farið var í ýmsa leiki og teknar voru líflegar myndir af hópum nemenda. Það má greinilega merkja að krakkarnir hafi skemmt sér vel. Kíkið endilega á myndirnar hér á síðunni.
Lesa meira

Skóladagatal 2010 - 2011

Skóladagatal næsta skólaárs er komið á vefinn. Nánari skýringar á dagatalinu munu birtast við skólalok hér á Brekkuskólavefnum.
Lesa meira

Ferilmöppudagar

Framundan eru ferilmöppudagar á yngsta- og miðstigi. Þeir verða sem hér segir: 7. bekkur 2. júní 6. bekkur 4.júní 5. bekkur 27. og 28. maí 4. bekkur 1. og 4. júní 3. bekkur 8. júní 2. bekkur 8. júní 1. bekkur 8. júní Nánari tímasetningar eru samkvæmt boðun frá umsjónarkennurum.
Lesa meira

Námsmatsdagar í 8. - 10. bekk

/* /*]]>*/ Vikuna 25. - 28. maí eru námsmatsdagar á elsta stigi. Próf byrja kl. 08:30. Þriðjudagur 25. maí: Stærðfræði hjá 8. og 9. bekk, íslenska hjá 10. bekk. Miðvikudagur 26. maí: Enska í 8. og 9. bekk, stærðfræði hjá 10. bekk. Fimmtudagur 27. maí: Danska hjá 8. og 9. bekk, enska hjá 10. bekk. Föstudagur 28. maí: Íslenska hjá 8. og 9. bekk, danska hjá 10. bekk. 10. bekkur tekur prófin á sal skólans. 8. og 9. bekkur í stofum. Próftími er 1,5 klst. og 2 klst. fyrir þá sem þurfa lengri tíma.
Lesa meira

Aðalfundur foreldrafélags Brekkuskóla

Aðalfundur foreldrafélags Brekkuskóla verður haldinn þriðjudaginn 1. júní kl. 20:00 á sal skólans. Fundarefni:
Lesa meira

Vorskóli - 5 ára nemendur 2010 - 2011

Vorskóli fyrir innritaða nemendur í 1. bekk skólaárið 2010 - 2011 verður þriðjudaginn 18. maí og miðvikudaginn 19. maí kl. 14:00 - 16:00.
Lesa meira

Reiðhjól og hjólaleiktæki

Þegar sól hækkar á lofti og klaki hverfur úr jörð fara nemendur að draga fram reiðhjól og önnur hjólaleiktæki. Því viljum við minna skólasamfélagið á umgengnisreglur Brekkuskóla varðandi reiðhjól og önnur hjólaleiktæki. Umgengnisreglurnar eru eftirfarandi:
Lesa meira

Tónleikar Stórhljómsveitanna I og II

Stórhljómsveit I heldur tónleika mánudaginn 10. maí kl. 17:00 á sal Brekkuskóla - ásamt gestum. Stórhljómsveit II heldur tónleika þriðjudaginn 11. maí kl.17:00 á sal Brekkuskóla - ásamt gestum. Þetta er lokaverkefni þeirra í stórhljómsveitarvali hjá Heimi Bjarna Ingimarssyni. Allir velkomnir! Frítt inn!
Lesa meira

Viðurkenningar skólanefndar

Samkvæmt skólastefnu Akureyrarbæjar skal árlega, veita þeim einstaklingum eða stofnunum sem skarað hafa fram úr í skólastarfi viðurkenningar. Markmiðið er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því góða starfi sem þeir eru að vinna og jafnvel gera enn betur. Viðurkenning er einnig staðfesting á að viðkomandi skóli/kennari/nemandi er fyrirmynd annarra á því sviði sem viðurkenning nær til.
Lesa meira

Frístund næsta skólaár

Hér má finna hagnýtar upplýsingar fyrir Frístund á næsta skólaári:  Hagnýtar upplýsingar Nánar um Frístund hér: http://brekkuskoli.is/is/page/skolinn_fristund 
Lesa meira