LITLU JÓLIN 20. desember 2010

Frístund opnar kl.08:00 fyrir nemendur sem þar eru skráðir.

Nemendur í 2., 4., 6. og 10. bekk mæta klukkan 08:00 í heimastofur. Klukkan 09:00 koma þau á sal skólans, þar sem verður dansað í kringum jólatré. Skóladegi lýkur klukkan 10:00 og Frístund opnar þá fyrir nemendur sem þar eru skráðir.

Nemendur í 3. ,7. og 9. bekk mæta klukkan 09:00 í heimastofur. Klukkan 10:00 koma þau á sal skólans, þar sem dansað verður í kringum jólatré. Skóladegi lýkur um klukkan 11:00 og Frístund verður opin fyrir nemendur sem þar eru skráðir.

Nemendur í 1., 5. og 8. bekk mæta klukkan 10:00 í heimastofur. Klukkan 11:00 koma þau á sal skólans, þar sem dansað verður í kringum jólatré. Skóladegi lýkur um klukkan 12:00. Frístund verður opin fyrir nemendur sem þar eru skráðir.

Eftir þennan dag eru nemendur komnir í jólafrí. Skólinn hefst aftur með viðtölum þriðjudaginn 4. og miðvikudaginn 5. janúar 2011. Viðtalsboð verða send út fyrir litlu jólin.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 6. janúar.