Ýmsar breytingar fylgja því að fara úr 7. bekk í þann 8. Ein stærsta breytingin er í því fólgin að á elsta
stigi er hluti kennslustunda sett fram sem val nemenda. Þá velja nemendur á milli kjörsviðsgreina. Skilafrestur umsókna um valgreinar er til og með 8.
maí 2013.
Hver nemandi þarf að skila 37 kennslustundum á viku. Í kjarna eru 29 kennslustundir hjá 9. og 10. bekk en 31 kennslustund í 8. bekk. Hver
kjörsviðsgrein samsvarar 2 kennslustundum á viku því þurfa nemendur í 9. og 10. bekk að velja 4 greinar en 8. bekkjar nemendur 3 greinar.
Kjörsviðsgreinar eru ekki aukagreinar heldur eru þær jafn mikilvægar og skyldugreinarnar og kröfur um ástundun og árangur eru á engan hátt
minni.
Gott getur verið að huga að framtíðaráformum strax í efstu bekkjum grunnskólans og þess vegna er mikilvægt að vanda
ákvarðanatöku um kjörsviðsgreinar. Það hefur ekki áhrif á rétt nemenda til framhaldsnáms hvaða kjörsviðsgreinar þeir
velja sér en það getur auðveldað framhaldsnám að hafa tekið greinar í grunnskóla sem skiptir máli fyrir þá námsbraut
í framhaldsskóla sem nemandi stefnir að.
Hér fyrir neðan eru kynningarbæklingur og umsóknareyðublöð fyrir nemendur og foreldra. Nemendur hafa þegar fengið kynningu frá
námsráðgjafa þar sem farið var yfir framboð kjörsviðsgreina og fyrirkomulagið útskýrt.
Kynningarbæklingur fyrir verðandi
nemendur 8., 9. og 10. bekkjar
Umsóknareyðublað fyrir verðandi 8. bekkinga
Umsóknareyðublað fyrir verðandi 9. og 10. bekkinga
Vakni einhverjar spurningar um ofangreint er velkomið að hafa samband við okkur.
Með bestu kveðju,
Steinunn Harpa, náms- og starfsráðgjafi -
steinunnh@akmennt.is
og Bergþóra Þórhallsdóttir, aðstoðarskólastjóri -
beggath@akureyri.is