Frá heimsókn 5 að verða 6 ára nemenda í Brekkuskóla
Innritun stendur yfir fyrir nemendur sem hefja grunnskólagöngu haustið 2013. Umsóknareyðublöð.
Innritaðir nemendur fá tækifæri til að koma í skólaheimsókn í skólann í nokkur skipti. Ein heimsókn er afstaðin
og sú næsta verður 18. og 20. mars næstkomandi. Þá velja foreldrar að koma með nemendur annan hvorn þann dag kl. 10:30 - 12:10. Nemendur
fá að vera með í kennslustund 1. árgangs og enda síðan kennslustundina á að fara með þeim í mat í matsal skólans.
Foreldrar eru hvattir til að kynna skólalóðina fyrir væntanlegum nemendum í þessum heimsóknum.
Þriðja heimsókn verður síðan
15. apríl og þá mæta allir í
Íþróttahúsið við
Laugargötu. Þar fá þau kynningu á búningsklefa og fá að spreyta sig í einum íþróttatíma með
íþróttakennurum.
Foreldrar fylgja væntanlegum nemendum í þessar heimsóknir.
Leikskólakennarar á Hólmasól fylgja nemendum þaðan en Hólmasól er samstarfsleikskóli Brekkuskóla.
Boðið verður jafnframt upp á
vorskóla þann 6. og 7. maí fyrir innritaða nemendur.
Sjáumst í skólanum!
Bergþóra Þórhallsdóttir aðstoðarskólastjóri