Spánarferð

Nú er komið að Spánarferð nemendenda í spænskuvali Brekkuskóla. Ferðin er hluti af Comeniusarverkefni og er yfirskrift þess "Ungmenni og samskipti" (Adolescence and Communication) Markmið verkefnisins er að nemendur skólans kynnist í gegnum bréfaskriftir og tölvur og vinni sameiginleg verkefni um löndin, menningu þeirra og tungumál. Einnig gefst þeim kostur á heimsóknum milli þjóðanna og skemmst er að minnast komu Spánverjanna í febrúar síðast liðnum. Þannig kynnast nemendur lífi ungmenna í öðru landi, fjölskyldu, skólagöngu og tómstundum. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.