Söngur á sal af stað aftur

Söngur á sal er komið á dagskrá Brekkuskóla á nýjan leik. Heimir Bjarni Ingimarsson tónlistarkennari skólans sér um framkvæmd og undirbúning. Það var greinilegt að nemendur hafa engu gleymt og sungu þakið næstum af skólahúsnæðinu. Heimir er þegar farinn að dusta rykið af jólasöngvunum sem hann segir að verði viðfangsefni næsta söngsals sem verður á aðventunni. Kærar þakkir fyrir skemmtilega samverustund krakkar.