Fimmtudaginn 20. febrúar var haldið bekkjarmót í 5. bekk Brekkuskóla. Alls tóku 26 nemendur þátt í mótinu sem verður að teljast mjög góð þátttaka. Krakkarnir eru mjög áhugasöm um skákíþróttina og hafa nokkur þeirra verið að æfa sig reglulega í þessari fornu íþrótt.
Að loknum fjórum umferðum höfðu þeir Baldur Thoroddsen og Tobias Matharel einir keppenda unnið allar sínar skákir og tefldu eina skák til úrslita um sigurinn í mótinu og sæmdarheitið „Skákmeistari 5. bekkjar 2020“. Eftir snarpa baráttu hafði sá síðarnefndi betur og er því bekkjarmeistari í þetta sinn.
Nánari upplýsingar má nálgast á síðu skákfélagsins: https://skakfelag.blog.is/blog/skakfelag/entry/2246077/
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is