Tveir ritstjórar frá Námsgagnastofnun komu í heimsókn til okkar í Brekkuskóla í vikunni og kynntu sér
kennslu í upplýsinga- og samskiptatækni, smíðum, dönsku og myndmennt. Ritstjórarnir fengu að fylgjast með kennslustundum og eiga samræðu
við kennara. Fleiri ritstjórar buðu síðan upp á samræðu í Háskólanum á Akureyri. Það er dýrmætt að
fá slíka heimsókn og til að ræða hvað má betur fara, hvað vantar af efni og hvers konar efni vantar. Við þökkum þeim
Guðríði og Hörpu kærlega fyrir komuna til okkar. Hér má sjá nokkrar myndir frá
heimsókninni.