Leikfangabasar Unicef

Ungmennaráð Unicef á Íslandi og SAMTAKA á Akureyri ætla að standa fyrir leikfangabasar fyrir börn á Glerártorgi, laugardaginn 22. mars frá kl. 13-17. Við verðum í bilinu þar sem Ice in a bucket var. Markmiðið með basarnum er að fá börn til að nýta leikföngin sín betur, læra um umhverfisvæn sjónarmið og sjálfbærni á sama tíma og þau fá fræðslu um Barnasáttmálann og réttindi sín. 

Börnum verður boðið að koma með leikföng, spil eða bækur sem þau eru hætt að nota og láta þau í skiptum fyrir notaða hluti frá öðrum börnum. Þannig geta notaðir hlutir öðlast nýtt líf í höndunum á nýjum börnum. Til að þetta verkefni geti orðið að veruleika, langar okkur að biðla  til ykkar  um að leggja okkur lið við að koma upp safni notaðra leikfanga/bóka/spila.

Ritari á skrifstofu Brekkuskóla mun taka á móti leikföngum og stimpla kort. Við munum hefja söfnun á miðvikudagsmorgni19/3 og til seinniparts á föstudeginum 21/3.

Við værum mjög þakklát ef þið væruð til í að fara í gegnum leikfanga- og barnabókasafnið á heimilinu og styrktuð okkur með hlutum sem eru ekki í notkun lengur innan heimilisins. Það er von okkar að þið takið vel í bón okkar og við sjáumst jafnframt á Glerártorgi.

Ath: þetta fer þannig fram, að börnin geta komið með leikföng á skrifstofu skólans og fá stimpil í kort í staðinn. Síðan geta þau valið sér leikföng á skiptimarkaðnum og þar gildir, einn stimpill = einn hlutur. Eða komið með leikföng á skiptimarkaðinn sjálfan og fengið önnur í staðinn.

Endilega takið þátt og gætið þess að leikföng/spil/bækur séu hrein og heil.