Börnum verður boðið að koma með leikföng, spil eða bækur sem þau eru hætt að nota og láta þau í skiptum fyrir notaða hluti frá öðrum börnum. Þannig geta notaðir hlutir öðlast nýtt líf í höndunum á nýjum börnum. Til að þetta verkefni geti orðið að veruleika, langar okkur að biðla til ykkar um að leggja okkur lið við að koma upp safni notaðra leikfanga/bóka/spila.
Ritari á skrifstofu Brekkuskóla mun taka á móti leikföngum og stimpla kort. Við munum hefja söfnun á miðvikudagsmorgni19/3 og til seinniparts á föstudeginum 21/3.
Við værum mjög þakklát ef þið væruð til í að fara í gegnum leikfanga- og barnabókasafnið á heimilinu og styrktuð okkur með hlutum sem eru ekki í notkun lengur innan heimilisins. Það er von okkar að þið takið vel í bón okkar og við sjáumst jafnframt á Glerártorgi.
Ath: þetta fer þannig fram, að börnin geta komið með leikföng á skrifstofu skólans og fá stimpil í kort í staðinn. Síðan geta þau valið sér leikföng á skiptimarkaðnum og þar gildir, einn stimpill = einn hlutur. Eða komið með leikföng á skiptimarkaðinn sjálfan og fengið önnur í staðinn.
Endilega takið þátt og gætið þess að leikföng/spil/bækur séu hrein og heil.
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is