Hæst bar árangur Bryndísar Rún Hansen sem varð Íslandsmeistari í 50 m flugsundi, enda er hún Íslandsmethafi í greininni. Þá vann hún silfur í 200 m fjórsundi og synti til úrslita í 400 m fjórsundi, 50 m skriðsundi og 100 m baksundi. Bryndís tryggði sér einnig keppnisrétt á Danska meistaramótinu með unglingalandsliði Íslands sem fram fer dagana 7.-12. apríl. Bryndís tók þá ákvörðun með Vlad að fara ekki á mótið heldur einbeita sér frekar að æfingum hér heima. Hún mun fara í æfingabúðir til Reykjavíkur og synda með Ægi dagana 3.-9. apríl.
Hildur Þórbjörg Ármannsdóttir vann brons í 50 m baksundi og synti til úrslita í 50 m baksundi.
Akureyrarmet
Talsverð skörð voru höggvin í Akureyrarmetaskrána. Stórtækastur í þeim efnum var Oddur
Viðar Malmquist sem setti Akureyrarmet drengja í 800 og 1500 skriðsundi og 50, 100 og 200m flugsundi, þar sem það síðasttalda var
tvíbætt.
Sótt af http://www.odinn.is/
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is