Foreldrar og skóli

Foreldramappa hefur nú verið afhent öllum foreldrahópum innan skólans. Foreldrum hefur einnig verið skipt upp í þrjú starfstímabil innan hvers árgangs. Listi yfir hópana er nú í vinnslu og verður brátt hægt að nálgast þá hér á síðunni. Þeir sem halda á "keflinu" fá möppuna í hendur og leiða vinnuna innan hvers árgangs. Það er von stjórnenda skólans og stjórnar foreldrafélagsins að þetta fyrirkomulag styðji við foreldrasamstarfið innan árganga. Hópeflileikir meðal nemenda eru komnir á fullt skrið og bekkjarfundir að komast í reglulegan farveg. Á næstunni verða síðanforeldra"námskeið" í 1., 5. og 8. bekk þar sem foreldrar og nemendur koma saman í fræðslu og hópefli. Mæting er í tvö skipti.

Fyrra skiptið mæta foreldrar með nemanda. Foreldrar fara á sal til að hlusta á fræðsluerindi og fara síðan í hópavinnu. Nemendur fara í hópefli. Að því loknu hittast nemendur og foreldrar og fara saman í hópefli. Að þessu loknu verður boðið upp á súpu og brauð.

Síðara skiptið hittast foreldar án nemenda í umsjónarstofu. Haldið verður áfram með hópefli og síðan verður haldinn bekkjarfundur þar sem foreldrar fá tækifæri til að kynna börnin sín.
ÖLL BÖRN ÞURFA AÐ HAFA FULLTRÚA Á ÞESSUM TVEIMUR FUNDUM. EF FORELDRAR GETA EKKI MÆTT ÞURFA ÞEIR AÐ SENDA FULLTRÚA Í SINN STAÐ.