Lið Brekkuskóla í undanúrslit

Brekkuskóli er kominn í 4 liða úrslit eftir sigur liðsins okkar á Grunnskólanum í Bláskógabyggð. Nú er spennan orðin rafmögnuð. Keppnin fór fram rafrænt á "Skype" þar sem þeir kepptu við lið Dalvíkurskóla. Lið Brekkuskóla er skipað sem hér segir:  Halldór Heiðberg Stefánsson, Jóhannes Stefánsson og  Hallgrímur Hrafn Guðnason en þeir eru allir í 10. bekk FDG. Þess má geta að liðið var í alfræðivaláfanga í fyrravetur sem leggur grunn að undirbúningi keppenda í spurningakeppninni. Kennari í alfræði er Helena Sigurðardóttir.