Vorskóli 2012

Frá fyrstu heimsókn
Frá fyrstu heimsókn
Verðandi nemendum í 1.bekk í Brekkuskóla skólaárið 2012 – 2013 stendur til boða að koma í vorskóla dagana 15. – 16. maí milli kl.14:00 og 16:00 báða dagana. Nemendur koma í fylgd foreldra/foreldris og hitta verðandi kennara sína sem undirbúið hafa þessar stundir með þeim.

Tilgangur heimsóknarinnar er að nemendur og kennarar hittist í fyrsta skipti í skólanum og geti rætt saman um það sem bíður þeirra í haust.

Leitast verður við að hafa stundina notalega þar sem kennarar lesa fyrir þau og  gefa þeim kost á að spreyta sig á einföldum verkefnum.

Boðið verður upp á hressingu frá skólanum í mötuneytinu í hléi báða dagana.

Reiknað er með að foreldrar skilji börnin eftir í skólanum þennan tíma. Ef þau treysta barninu ekki til þess að vera eitt er sjálfsagt að dvelja með þeim þennan tíma. Foreldrar þekkja börn sín best.

Ætlast er til að nemendur verði sóttir kl.16:00 báða dagana.

 Foreldrafundur

Foreldrafundur verður á sal skólans síðari vorskóladaginn 16. maí kl.14:45. Þar munu stjórnendur skólans fara yfir helstu upplýsingar um skólann og skólastarfið og Rut Indriðadóttir mun kynna lestrarkennsluaðferðina Byrjendalæsi.

Sjáumst í skólanum!

Ástrós, Garðar, Rut og Bergþóra

Kynningarbæklingur yngsta stigs - Svona gerum við