Vorskóli 2009 fyrir 5 ára nemendur

Verðandi nemendum í 1.bekk í Brekkuskóla skólaárið 2009 – 2010 stendur til boða að koma í Vorskóla dagana 11. – 12. maí milli kl.14:30 og 16:30 báða dagana.

Nemendur koma í fylgd foreldra/foreldris og hitta verðandi kennara sína sem undirbúið hafa þessa stund með þeim.

Tilgangur heimsóknarinnar er að nemendur og kennarar hittist í fyrsta skipti í skólanum og geti rætt saman um það sem bíður þeirra í haust.

Leitast verður við að hafa stundina notalega þar sem kennarar lesa fyrir þau og  gefa þeim kost á að spreyta sig á einföldum verkefnum.

Boðið verður upp á hressingu frá skólanum í mötuneytinu í hléi báða dagana.

Reiknað er með að foreldrar skilji börnin eftir í skólanum þennan tíma. Ef þau treysta barninu ekki til þess að vera eitt er sjálfsagt að dvelja með þeim þennan tíma. Foreldrar þekkja börn sín best.

Ætlast er til að nemendur verði sóttir kl.16:30 báða dagana.

Foreldrafundur

Foreldrafundur verður á sal skólans síðari Vorskóladaginn 12. maí kl.14:45. Þar munu stjórnendur skólans fara yfir helstu upplýsingar um skólann og skólastarfið og Helga Sigurðardóttir umsjónarkennari sérkennslu mun fjalla um lestur og lestrarnám barna.

Við hlökkum til að hitta ykkur í skólanum!

Sigrún, Oddný, Sigurlína, Bergþóra og Helga