Hlutverk Vitundarvakningar er að kortleggja, samhæfa og stuðla að umfangsmiklu forvarnarstarfi í málaflokknum í samstarfi við viðkomandi aðila, huga
að rannsóknum varðandi ofbeldi gegn börnum og stuðla að aukinni samfélagsvitund um málaflokkinn. Fræðsla og forvarnir beinast fyrst og fremst
að börnum, fólki sem vinnur með börnum, réttarvörslukerfinu sem og almenningi.
Vitundarvakningin á rætur að rekja til fullgildingar íslenskra stjórnvalda, árið 2012, á samningi Evrópuráðsins um varnir gegn
kynferðislegri misnotkun og kynferðislegri misneytingu barna sem samþykktur var á Lanzarote árið 2007. Í kjölfarið gerðu
innanríkisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og velferðarráðuneyti með sér samning um verksvið Vitundarvakningar.
Árið 2013 var ákveðið að Vitundarvakningunni yrði falið víðtækara hlutverk og nái einnig til andlegs og líkamlegs ofbeldis gegn
börnum.
Þverfaglegt samstarf ráðuneytanna helgast af því hversu víðfemt efni sáttmálans er og skiptingu stjórnarmálefna milli
ráðuneyta. Samstarfið er einnig til þess fallið að koma í veg fyrir tvíverknað með auknu upplýsingaflæði og samráði um
málaflokka sem snerta samfélagslega vernd barna.
Verkefnisstjórn Vitundarvakningar um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum skipa Jóna Pálsdóttir, tilnefnd af mennta- og
menningarmálaráðuneyti, sem jafnframt er formaður verkefnisstjórnar, María Rún Bjarnadóttir, tilnefnd af innanríkisráðuneyti og
Guðríður Bolladóttir tilnefnd af velferðarráðuneyti. Kristín Jónsdóttir er verkefnastjóri og Karen Ásta
Kristjánsdóttir er starfsmaður verkefnisstjórnar.
Verkefnastjóri og starfsmaður Vitundarvakningar eru staðsettir í mennta- og menningarmálaráðuneyti, velferðarráðuneyti sér um vef
verkefnisins og innanríkisráðuneyti heldur utan um fjármál og sér um greiðslur reikninga.
Helstu verkefni sem þegar hafa verið framkvæmd eða hafin vinna við:
- Átjánfræðsluþingvoru haldin víða um land árunum 2012
til 2014. Fræðsluþingin voru hugsuð fyriralla þá sem vinna með börnum, s.s.stjórnendur, kennara og annað starfsfólk á öllum
skólastigum, forvarnarfulltrúa, náms- og starfsráðgjafa, íþrótta-og æskulýðsfulltrúa, starfsmenn barnaverndarnefnda,
starfsmenn heilsugæslu og félagsþjónustu og fulltrúa sveitastjórna og lögreglu.
- Tengiliðanet sem nær til 1400 aðila í leik- grunn og framhaldsskólum landsins. Einnig eru tengsl við barnaverndarnefndir, Barnaverndarstofu, Barnahús,
félagsþjónustu sveitarfélaga, Fjölmenningarsetur, Jafnréttisstofu, lögreglu, heilsugæslustöðvar, heilbrigðisstofnanir og embætti
landlæknis.
- Póstkort sent til allra landsmanna til að árétta tilkynningarskyldu um ofbeldi á börnum
á grundvelli barnaverndarlaga.
- Sýningar ábrúðuleikritinu Krakkarnir í hverfinuí öllum 2. bekkjum
grunnskóla landsins á árunum 2012 til 2014.
- Fáðu já,stuttmynd um mörkin milli ofbeldis og kynlífs, fyrir framhaldsskóla og elstu nemendur grunnskóla.
Myndin fjallar um kynferðislegt ofbeldi, áhrif klámvæðingar og heilbrigt kynlíf. Myndin er aðgengilegmeð textum
á sjö tungumálum.Kennaraleiðbeiningar voru unnar með myndinni og nýtast
þær jafnframt sem fræðsla fyrir fullorðna um hvernig nálgast megi umræðu um þessi mál við unglinga.
- Samningur við Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur og Brynhildi Björnsdóttur um
gerð myndarinnar Stattu með þér. Myndin er hugsuð sem forvarnar- og fræðsluefni ætlað miðstigi grunnskóla.
- Leiðbeiningareglur ráðherranefndar Evrópuráðsins um
barnvænlega réttarvörslu
(Guidelines of the Committee of
Ministers of the Council of Europe on child friendly justice).
- Styrkur veittur tilRannsóknastofu í barna- og æskulýðsfræðumá
menntavísindasviði HÍ, til rannsókna og eftirfylgni vegna leiksýninga á Krökkunum í hverfinu.
- Samningur gerður viðRannsóknarstofnun Ármanns Snævarr um
fjölskyldumálefnium gerð fræðsluefnis fyrir réttarvörslukerfið.
- Samningur gerður við Námsgagnastofnun um gerð leiðbeiningarrits til að auðvelda kennurum
og öðru starfsfólki skóla að sporna gegn hvers kyns ofbeldi gegn börnum.
- Fyrirliggjandi fræðsluefni, um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi sem börn
verða fyrir, kortlagt.
- Haldið námskeið, í samvinnu við Námsgagnastofnun, um kynjamennt þvert á
námsgreinar fyrir kennara á mið- og unglingastigi. Námskeiðið byggir á grundvelli Pestalozzi-áætlunar Evrópuráðsins um
starfsþróun og þjálfun kennara.
Í farvatninu er að:
- Áframhaldandi sýningar á brúðleikritinu Krakkarnir hverfinu, fyrir nemendur í 2. bekk grunnskóla, á haustönn 2014.
- Stuttmyndin Stattu með þér sýnd í öllum grunnskólum landsins, á haustönn 2014.
- Þrjú fræðslumyndbönd um réttarvörslukerfið, fyrir brotaþola og aðstandendur þeirra.
- Útgáfa fræðsluefnis um málsmeðferð réttarkerfisins og réttarvernd barna.
- Námskeið fyrir starfsfólk réttarvörslukerfisins í kjölfar útgáfu fræðsluefnis.
- Útgáfa leiðbeiningarits fyrir kennara.
- Kortlagning á stjórnvöldum, félagasamtökum og hópum sem tengjast vernd barna gegn kynferðislegu, andlegu og líkamlegu ofbeldi.
- Yfirlit yfir skilgreiningar og hugtök sem tengjast ofbeldi gegn börnum.