Vinningshafar í Brekkuvision

Þeir unnu 1. sætið 2014
Þeir unnu 1. sætið 2014
Hæfileikakeppnin "Brekkuvision" fór vel fram. Margir hæfileikaríkir nemendur stigu á stokk. Úrslit urðu sem hér segir: 1. sæti  Jóhann Þór, Egill, Egill Bjarni og Hafsteinn 7. BG sem spiluðu og sungu lag og frumsaminn texta um tölvufíkn. Myndskeið. 2. sæti Margrét Indíana 7. KI. Indíana söng einsöng 3. sæti Danshópur stúlkna úr 6. HBG Í hléi voru brandarar sagðir af nokkrum 5. bekkingum. Þátttakendur keppninnar, bæði í undanúrslitum innan árganga og í keppninni sjálfri, eru í raun allir sigurvegarar þar sem þau tókust á við mikla áskorun. Áhorfendur fá hrós fyrir virkan þátt og prúðmennsku á meðan keppendur komu fram á sviðinu.